Flottur hugmyndabíll Kia 13. febrúar 2013 10:15
Mikið er lagt í þennan tvinnbíl, alls 400 hestöfl og nóg af lúxusbúnaði. Á bílasýningunni í Chicago sýndi Kia nýjan fjórhjóladrifinn hugmyndabíl, Cross GT Concept CUV. Hann er blendingur sem er nokkru stærri en Sorento jeppinn frá Kia og er með tvinnaflrás. Mikið er lagt í þennan bíl hvða varðar þægindi og rými og í honum má finna ýmsan lúxusbúnað. Útlitseinkenni bílsins er lítil slútun að framan og aftan en samt mikið hjólhaf. Bíllinn er ennfremur hábyggður og með sítengdu aldrifi. Cross GT er með 3,8 lítra, V6 bensínvél og flatur rafmótor sem er undir gólfi bílsins. Samanlegt er afkastageta bílsins 400 hestöfl og togið ekkert smáræði eða alls 678 Nm. Bíllinn kemst 30 km eingöngu fyrir rafmagni en bíllinn mun verða með lágan koltvísýringsútblástur. Samkvæmt upplýsingum frá Kia kemur fram að Cross GT sé náskyldur Sorento en ennþá stærri. Hjólahafið er 3,10 m, eða 40 cm lengra, og lengd bílsins er 4,90 metrar. Það hlýtur að koma að því að Kia taki þátt í markaðinum fyrir stærri SUV bíla og því eru líkurnar á því að þessi bíll fari í framleiðslu ágætir.
Mest lesið Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu Innlent Helgi Pétursson er látinn Innlent Svona stór er nýja moskítóflugan í samanburði Innlent Klóraði sig til blóðs meðan hann svaf Innlent Fengu nóg og tóku málin í sínar eigin hendur Innlent Skortir lækna í Breiðholti Innlent „Þeir sem leika sér að eldinum munu brenna upp til agna“ Erlent Átján ára látnir svara spurningalista um hæfni þeirra til herþjónustu Erlent Ætla að flytja starfsemi Vogs Innlent Embættismenn hafa áhyggjur af sölu F-35 herþota til Sádi Arabíu Erlent