Risa jeppasýning hjá Toyota á laugardag 21. febrúar 2013 14:15 Mikið úrval breyttra jeppa verða til sýnis á bílasýningu Toyota
í fyrsta sinn í nýjum höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni í Garðabæ. Næsta laugardag heldur Toyota árlega jeppasýningu sína. Þetta er í fjórða sinn sem jeppasýningin er haldin hjá Toyota en hún hefur þegar unnið sér sess meðal jeppaáhugamanna sem einn af hápunktum ársins. Sýningin er nú haldinn í fyrsta sinn í nýjum höfuðstöðvum Toyota í Kauptúni í Garðabæ. Sýningarsvæðið er því stærra og betra en áður. Á sýningunni má sjá það besta sem Toyota og samstarfsaðilar hafa fram að færa í jeppum og jeppabreytingum. Íslandsbíllinn Land Cruiser 150, Land Cruiser 200 og Hilux verða stjörnur sýningarinnar. Mjög gott úrval óbreyttra jeppa í þessum tegundum verður í sýningarsal og boðið verður upp á reynsluakstur. Jeppar sem breytt er fyrir 33 – 46 tommu dekk verða sýndir bæði í sal og á útisvæði. Arctic Trucks tekur þátt í sýningunni og verður með nýja Hilux og Land Cruiser bíla sem breytt hefur verið fyrir 38" dekk. Klettur sýnir jeppadekk og Vífilfell svalar þorstanum með ísköldu Coca-Cola og Coke Zero. Boðið verður upp á góðgæti frá Freyju og 4x4 klúbburinn og Útivist kynna starfsemi sína. Einnig verður 66° norður með kynningu á útivistarfatnaði og mun meðal annars sýna útbúnað Vilborgar Örnu Gissurardóttur sem hún notaði í ferð sinni á Suðurpólinn. Á þriðja þúsund gestir komu á sýninguna í fyrra og er reiknað með að minnsta kosti sama fjölda í ár enda er þetta án efa ein glæsilegasta bílasýning ársins.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Innlent Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Innlent