Rajoy ætlar að birta yfirlit yfir eignir sínar Magnús Halldórsson skrifar 4. febrúar 2013 10:37 Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar.
Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, segir að stjórnvöld muni leggja meiri áherslu á gagnsæi og baráttu gegn spillingu, með það fyrir augum að endurheimta traust íbúa landsins, en mótmæli í stærstu borgum Spánar, þar sem megininntakið er barátta gegn spilltri stjórnsýslu, hafa verið fjölmenn undanfarna mánuði. Á vefsvæði Wall Street Journal (WSJ) í dag, er frá því greint að skoðanakannanir meðal íbúa Spánar sýni mikið vantraust í garð stjórnvalda. Þá hefur þrálátur orðrómur verið um það í umræðudálkum blaða á Spáni, að Rajoy sjálfur og stjórnarflokkarnir hafi fengið miklar peningagreiðslur frá fjármálafyrirtækjum á Spáni. Þessu hefur Rajoy neitað, og sagði hann í sjónvarpsviðtali í gær að hann myndi opinbera allar fjármunaeignir sínar og skattgreiðslur til þess að eyða efasemdum meða íbúa Spánar. Sjá má frétt WSJ hér.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira