Vincent Tchenguiz vill 200 milljónir punda frá SFO 6. febrúar 2013 14:43 Vincent Tchenguiz
Íranski kaupsýslumaðurinn Vincent Tchenguiz hefur stefnt bresku efnahagsbrotalögreglunni SFO. Hann krefst þess að fá tvö hundruð milljónir í skaðabætur, eða það sem nemur tæpum fjörutíu milljörðum króna. Mál SFO gegn Tchenguiz var fellt niður á síðasta ári en það var í tengslum við hrun íslenska bankakerfisins, einna helst Kaupþings.Greint er frá þessu á vef Financial Times í dag. Þar kemur fram að kæran á hendur SFO sé 66 blaðsíður að lengd. Stofnunin er sökuð um að hafa brotið ítrekað á rétti Tchenguiz. Að sama skapi eru vinnubrögð hennar gagnrýnd, þá sérstalega upplýsingaöflun sem að hluta til fór fram í gegnum þriðja aðila, endurskoðunarfyrirtækið Grant Thornton. Félagið hafði áður starfað með kröfuhöfum Kaupþings. Ákveðið var að falla frá málinu á hendur á Tchenguiz eftir að SFO viðurkenndi að hafa misskilið rannsóknargögn málsins. Tchenguiz lýsti því yfir við Financial Times að hann hefði orðið fyrir stórfelldu fjárhagslegu tjóni vegna rannsóknar SFO.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira