Mazda6 frumsýndur 10. janúar 2013 16:00 Sportlegar línur og evrópskt útlit einkennir nýjan Mazda6
Ný kynslóð Mazda6 er 20% sparneytnari en forverinn. Nýr Mazda6 verður kynntur á laugardaginn, kl. 12-16 hjá Brimborg í Reykjavík og hjá Brimborg á Akureyri. Fjölmargar nýjungar í spartækni og öryggi eru kynntar með nýjum Mazda6. Má þar nefna snjallhemlunarkerfi, blindspunktsaðvörunarkerfi og nýja og þýða sjálfskiptingu. Mazda notar um 20% meira af hástyrktarstáli í nýjan Mazda6 en í forvera hans og þrátt fyrir að vera stærri en fyrirrennarinn þá er nýi bíllinn léttari og öruggari. Mazda tókst að skera af um 140 kíló. Nýr sjálfskiptur Mazda6 með nýjustu SkyActiv bensínvélinni er ríflega 20% sparneytnari en fyrri kynslóð. Það teljast góðar fréttir fyrir Íslendinga að bíllinn er hærri á vegi en fyrri Mazda6 þrátt fyrir að þyngdarpunkturinn hafa færst neðar. Bíllinn hefur hlotið góða dóma og erlendir bílablaðamenn hafa lofað aksturseiginleika og fádæma sparneytni nýja bílsins. Mazda6 er einnig í boði með nýjustu SkyActiv dísilvélinni frá Mazda.
Mest lesið „Ef við værum nasistar þá værum við ekki að skipta um kross“ Innlent Engin byssa reyndist vera í bílnum Innlent Dásamar ÁTVR og skýtur á lögreglustjóra Innlent „Sannarlega ekki eitthvað sem ég ætlaði að taka þátt í“ Innlent Ókyrrð að aukast en lítil hætta á ferðum Innlent Kínverskt skip stórskemmt eftir árekstur við tundurspilli Erlent Neitar að birta dómsskjöl og gagnrýnir Trump-liða fyrir blekkingarleik Erlent Boðar aðgerðir í þágu öryggis og fegrunar Washington D.C. Erlent Fer í þrjú útköll á dag: Sprenging í útköllum vegna veggjalúsar Innlent „Alvarlegar afleiðingar“ verði greiðsluþátttöku hætt Innlent