Védís hefur sólóferilinn að nýju 9. ágúst 2012 07:30 Ragnheiður Gröndal og Védís Hervör leiða saman hesta sína á tónleikum á morgun þar sem Védís kemur út úr skápnum með nýtt efni ásamt eiginmanni sínum. Fréttablaðið/ernir „
Þetta er svo ríkt í mér og það sem gerir mig hamingjusamasta og það liggur beinast við að rækta garðinn sinn,“ segir söngkonan Védís Hervör Árnadóttir. Hún flytur eigin tónsmíðar í fyrsta sinn í langan tíma annað kvöld sem gestur Ragnheiðar Gröndal í tónleikaröð hennar á Café Haiti klukkan hálf tíu. Hún mun leika nýtt efni, í bland við lög af plötunni A Beautiful Life: Recovery Project frá árinu 2007, á hljómborð og rödd ásamt eiginmanni sínum Þórhalli Bergmann. „Við ætlum að flytja glæný lög. Sum eru þriggja ára gömul og önnur urðu til í byrjun árs,“ segir Védís. „Þegar Ragga bauð mér að vera með sló ég til. Þetta var akkúrat tíminn til að koma út úr skápnum með nýja efnið og við flytjum það eins og það kemur beint af kúnni.“ Ragnheiður hyggst halda mánaðarlega tónleika fram að áramótum til að undirbúa tónleikaferð um Þýskaland en plata hennar Astrocat Lullaby kemur út í Þýskalandi og víðar 31. þessa mánaðar. Söngkonurnar eru góðar vinkonur og báðar nýbakaðar mæður. „Við höfum verið að hittast í kringum þetta barnastúss og hún talaði um að hana langaði að spila meira svo ég var svolítið að sparka í rassgatið á henni,“ segir Ragnheiður og skellir upp úr. Védís hefur lagt stund á líffræðilega mannfræði og sinnt móðurhlutverkinu undanfarin ár og því lítið getað unnið að sólóferlinum. Hún hyggst þó gera breytingar á og setja tónlistina í fyrsta sætið. „Ég hef verið í góðu samstarfi við lagahöfundateymi í London frá árinu 2003 svo ég hef verið að gera fullt tengt músík,“ segir Védís og Ragnheiður bætir við að þær nái ef til vill að semja lítið lag fyrir tónleikana. - hþt
Tónlist Mest lesið Opnar sig um augnlokaaðgerðina Lífið Þetta fengu ráðherrarnir gefins Lífið Maður geti þurft að díla við „konu sem er á túr“ og í vondu skapi Lífið Móðurmorð í blóðugu jólaboði Gagnrýni Þegar Bardot fór í „leyniferðalag“ til Íslands Lífið Von á barni með þeim nýja átta mánuðum eftir skilnaðinn Lífið Blö byrjar árið á bingói Lífið Isiah Whitlock Jr. látinn Lífið Egill Ólafs og Gísli Marteinn sprækir á annan í jólum Menning Illugi Jökuls gómaði rottuunga eftir klukkutíma eltingaleik Lífið Fleiri fréttir Heitustu lögin á FM árið 2025 Afþakka miðann til Vínar vinni þeir undankeppnina Prikið vekur athygli út fyrir landsteinana Abba skilar 350 milljörðum í kassann Ísraelar fá að vera með í Eurovision Halda aðra tónleika á Íslandi fyrir þá sem misstu af Allt alltaf alls staðar í allra besta lagi Miley Cyrus trúlofuð Þau þykja skara fram úr í íslenskri tónlist Þau hlutu verðlaun Dags íslenskrar tónlistar Bein útsending: Hver hlýtur viðurkenningu á Degi íslenskrar tónlistar? Sjá meira