Goðsögn með Taylor í Hörpu 30. mars 2012 16:00 goðsögn til landsins Steve Gadd spilar á trommur í hljómsveit James Taylor í Hörpunni í maí.nordicphotos/getty „
Þetta er algjör goðsögn," segir trommarinn Einar Scheving um kollega sinn Steve Gadd sem spilar með James Taylor í Hörpunni í maí. Gadd hefur á ferli sínum einnig spilað mikið með Eric Clapton og Paul Simon á tónleikum, auk þess sem hann hefur spilaði inn á hljómplötur með fjölda þekktra flytjenda á borð við Paul McCartney, Peter Gabriel og The Bee Gees. Einar kynntist Gadd lítillega þegar hann var einn af leiðbeinendum á námskeiði sem hann sótti í Danmörku. „Ég kynntist honum lítillega, alla vega nóg til að heyra í honum annað slagið," segir Einar, sem hefur miklar mætur á Gadd. „Þetta verða frábærir tónleikar með James Taylor en Gadd er náttúrulega bónus enda má segja að hann sé stærsta nafnið í trommuheiminum. Hann er ekki þekktasti trommarinn í heiminum en í þessum trommubransa er hann sennilega stærsta nafnið." Að sögn Einars var Gadd einnig einn eftirsóttasti djasstrommuleikari heims um tíma og spilaði mikið með Chick Corea sem stígur einmitt á svið í Hörpunni í apríl. Hann segir að trommustíll Gadds sé mjög einkennandi. „Þó að hann sé þekktur fyrir að vera mjög leiðandi tæknilega er hann ekkert endilega að fara hamförum um settið. Hann er fyrst og fremst með þungavigtargrúv og gefur allt í músíkina." - fb
Lífið Mest lesið Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Lífið „Meðan ég er ánægð skiptir álit annarra engu“ Tíska og hönnun Óþekkjanleg á Óskarnum Tíska og hönnun Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Lífið Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Lífið Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Lífið Bæði fyrsta konan og svarta manneskjan til að vinna Bíó og sjónvarp Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Lífið Hver þarf pizzu þegar Laufey er komin á sviðið? Gagnrýni Þau flottustu og mest púkó á Óskarnum Tíska og hönnun Fleiri fréttir Áttu ógleymanlegt augnablik þegar Laufey sá þær í salnum Komst áfram fyrst íslenskra kvenna á vængjum fjallkonunnar Komu Laufey og félögum á óvart með pulsustandi Hefur safnað sjö milljónum í minningu Jökuls Íslendingur fagnaði Óskarsverðlaunum Ekki lengur „give me five-frambjóðandi“ Hver er Alex Jones? Maðurinn sem vopnvæddi óttann og græddi milljarða Stjörnulífið: Bombur í Hörpu Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Uppljómun í Kaupmannahöfn breytti lífinu Krakkatía vikunnar: Hljóð, fróð og ljóðaflóð Leitaði aftur til Stígamóta eftir að gömul sár gerðu vart við sig Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Hvernig er hægt að elska foreldrið sem hefur sært mann? „Komum okkur fyrir í Hugrekkislestinni“ Fréttatía vikunnar: Fótur, fit og Gunnar Nelson „Viljum alls ekki fá fólk hingað inn og skamma það“ Gauragangur í Menntaskólanum að Laugarvatni Kelly Clarkson segist hvorki hafa fengið sigurféð né bílinn sem henni var lofað Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Sigríður Dögg komin í ömmuklúbbinn Andar í burtu kvíðann og drekkur te til að slá á sykurþörfina Fimmta dóttirin skírð Ozzy Gísli Marteinn rís upp í krafti sýklalyfja Þegar fólk var skotmarkið í safaríferð Pearl Jam á móti sjókvíaeldi á Íslandi Finnbogi hlaut Íslensku myndlistarverðlaunin fyrir Skjálfta Trúlofun slitið, forræðisdeila hafin og lögreglu blandað í málið Íslensk ungmenni fá sendar nektarmyndir í hefndarskyni Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Sjá meira