Ittala skoðar íslenska hönnuði 19. mars 2012 12:00 Sölusýningin DesignMatch fer fram í Norræna húsinu í tengslum við Hönnunarmars. Hugmyndin er komin frá Max Dager, forstjóra Norræna hússins, og munu hönnunarhús á borð við Ittala og Design House Stockholm munu sækja sýninguna. fréttablaðið/anton brink
DesignMatch er haldin í Norræna húsinu í þriðja sinn þann 23. mars. Sýningin er haldin í tengslum við HönnunarMars og í ár taka nokkur stærstu hönnunarhús Norðurlandanna þátt í henni. Meðal þeirra hönnunarhúsa er taka þátt í DesignMatch eru finnska fyrirtækið Iittala, hið sænska Design House Stockholm, One Collection og DFTS Factory. Íslenskir hönnuðir fá þar með tækifæri til að hitta norræna kaupendur og framleiðendur og kynna fyrir þeim íslenska hönnun. Helga Viðarsdóttir, markaðsstjóri Norræna hússins, segir sölusýninguna hafa tekist vel undanfarin tvö ár og að ýmis viðskiptatengsl hafi orðið til vegna hennar. „Kaupendur frá þessu hönnunarhúsum mæta og skoða verk eftir efnilega, íslenska hönnuði og ýmist kaupa hugmyndina af hönnuðinum eða kaupa vöruna til að selja í verslun sinni. Samningarnir sem gerðir eru fara eftir óskum hvers og eins en það þykir gott tækifæri að komast að hjá þessum húsum,“ útskýrir Helga. Fjölmargir íslenskir hönnuðir óskuðu eftir þátttöku í ár en Hönnunarmiðstöðin sá um að velja hóp þátttakenda. Hugmyndin að DesignMatch er komin frá Max Dager, forstjóra Norræna hússins, og segir hann viðburðinn eiga að stuðla að nýjum viðskiptatengslum milli hönnuða og framleiðenda. „Um sextíu hönnuðir sendu inn umsókn fyrir um 100 vörur og ég vona að einhverjir samningar verði gerðir í kjölfarið,“ segir Max að lokum. -sm
HönnunarMars Mest lesið Selja útsýnishús með saunu og sjóvatnspotti Lífið Dottinn í það á ný: „Ég var edrú í sjö ár“ Lífið Pálmi Kormákur og Guðrún nýtt par Lífið Gugga á Þjóðhátíð: „Er þetta leigubíll? Nei, þetta er pó-pó“ Lífið Einstakt einbýlishús á 235 milljónir í Garðabæ Lífið Konan sem malaði Stebba og Eyfa á leið til landsins Tónlist „Það er engin skömm í krabbameininu“ Lífið Urður yfirgefur Kastljós Lífið María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Tíska og hönnun Pylsur eins og þú hefur líklega aldrei grillað þær áður Lífið samstarf Fleiri fréttir María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu „Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ „Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ Heitast að vera aðeins of fín, alltaf Stórbrotinn stíll Zendayu Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Sjá meira