Neysla Dana á skyri hefur margfaldast á síðustu árum 15. desember 2012 12:19
Neysla Dana á skyri hefur margfaldast á síðustu árum. Þetta kemur fram í greiningu sem unnin var á vegum danska matvælarisans FDB sem á m.a. Coop verslunarkeðjuna. Ef tekin er neyslan á skyri í Danmörku í marsmánuði árlega frá 2009 kemur í ljós að það ár borðuðu þrír af hverjum 10.000 Dönum skyr í morgunmat. Í ár eru þetta orðnir þrír af hverjum 1.000 Dönum þannig að neyslan hefur tífaldast á fjórum árum. Það eru einkum íbúar í Kaupmannahöfn og á Norður Sjálandi sem borða skyr og einkum hámenntað og tekjuhátt fólk frekar en hinn almenni Dani. Vegna þess hve mikið er borðað af skyri í Danmörku er það ekki lengur flutt inn frá Íslandi heldur framleitt af mjólkursamlögunum Thise Mejeri og Lögismose. Í frétt um málið á vefsíðu danska ríkisútvarpsins segir að skyrið sé með lágt fituinnihald en mikið af próteinum og því mjög hollur matur.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira