Helmingslíkur á að hægt verði að bjarga SAS Jón Hákon Halldórsson skrifar 18. nóvember 2012 21:23
Fundað er um það í kvöld hvort hægt verði að bjarga SAS flugfélaginu frá gjaldþroti. Fram kemur á viðskiptavefnum epn.dk að von sé á niðurstöðu um klukkan ellefu í kvöld að íslenskum tíma. Forstjóri félagsins hefur sagt að það séu um helmingslíkur á því að hægt verði að bjarga félaginu. Áður en niðurstaða liggur fyrir þurfa stjórnendur SAS og starfsmenn að vera sammála um niðurskurðaraðgerðir. Þar er meðal annars um að ræða lækkun launa og skerðingu á lífeyrisréttindum. Fyrr í nóvember hafði SAS tilkynnt umfangsmiklar sparnaðar- og hagræðingaráætlun. Með áætluninni átti að spara um 3 milljarða sænska króna eða um tæplega 60 milljarða króna. Áætlunin fólst meðal annars í því að reka 800 starfsmenn til að byrja með og lækka laun almennt um 15%. Til lengri tíma stóð til að fækka starfsmönnum SAS úr 15.000 og niður í 9.000. Eins og staðan er í kvöld er óvíst að sú hagræðingaráætlun nægi. En stjórnendur SAS segjast ætla að senda tilkynningu þegar niðurstaða hefur fengist í viðræðunum sem standa yfir.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira