Fjármálaráðuneytið vísar ásökunum Víglundar á bug 20. ágúst 2012 20:25 Fjármálaráðuneytið.
Fjármálaráðuneytið hafnar því að hafa ekki brugðist við málaleitan Víglundar Þorsteinssonar, fyrrverandi forstjóra BM Vallár. Á blaðamannafundi í dag sagði Víglundur að ráðuneytið hefði neitað að veita upplýsingar um endurmat á lánasöfnum sem færð voru úr Kaupþing hf. yfir í Ariobanka. „Fjármálaráðuneytið hefur afhent þau gögn sem það hefur undir höndum og því hefur verið heimilt að afhenda," segir á heimasíðu ráðuneytisins. Á blaðamannafundinum í dag sagði Víglundur að niðurstaða Úrskurðarnefndar um upplýsingarmál að synja sér um aðgang að samingum um endurmat á lánasöfnum staðfesti það að listi hafi verið gerður í Arionbanka yfir skuldara sem vinna átti á. Í tilkynningu Fjármálaráðuneytisins er ásökunum Víglundar vísað á bug. „Dylgjum um að ráðuneytið, ríkisstjórn eða einstakir ráðherrar hafi haft afskipti af einstökum lánum eða lánveitendum er alfarið vísað á bug," segir á heimasíðu Fjármálaráðuneytisins. Hægt er að nálgast tilkynningu ráðuneytisins hér.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira