Einn af upphafsmönnum evrusamstarfsins óttast um framtíð þess JHH skrifar 8. ágúst 2012 20:01 myn/ afp.
Otmar Issing, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabanka Evrópu, varar við því að evrusvæðið geti liðast í sundur í bók sem kallast "Hvernig við björgum evrunni og styrkjum Evrópu" og kemur út í þessari viku. Öll rök standa til þess að bjarga evrusvæðinu. Það liggur þó enn ekki fyrir hve mörg ríki geta verið með í framtíðinni, segir Issing í bókinni, sem er skrifuð sem samtal á milli hagfræðings og blaðamanns. Samkvæmt frásögn Daily Telegraph nefnir Issing Grikkland aldrei á nafn, en ríkið hefur rambað á barmi gjaldþrots í allnokkurn tíma. Ríkið hefur þurft að skera verulega niður útgjöld og hækka skatta til að fá lánafyrirgreiðslu frá Evrópusambandinu og Seðlabanka Evrópu. Issing er einn af þeim sem hönnuðu evrusamstarfið, en hann spáði því jafnframt að vandamál gætu komið upp. Nú segir hann að sum ríki verði að yfirgefa myntsamstarfið til að ná tökum á eigin skuldamálum en Þýskaland ætti að vera áfram í evrusamstarfinu.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira