Fyrsti sigur Þróttara, töpuð stig Leiknis og stórsigur Ólsara Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. júní 2012 16:53 Arnar Sveinn skoraði eitt marka Víkings Ólafsvíkur í dag.
Víkingur Ólafsvík skellti sér á topp 1. deildar karla með 4-0 sigri á BÍ/Bolungarvík á heimavelli í dag. Þróttarar unnu sinn fyrsta deildarsigur 2-1 gegn KA og Leiknir og Tindastóll skildu jöfn 1-1 í Breiðholti. Ekki er víst að vera Ólsara á toppnum vari lengi því Höttur og Fjölnir eigast við sem stendur. Þeir geta í það minnsta fagnað flottum sigri á Djúpmönnum á Snæfellsnesi í dag. Arnar Sveinn Geirsson skoraði eina mark fyrri hálfleiks en í þeim síðari opnuðust flóðgáttirnar. Guðmundur Magnússon og Alfreð Már Hjaltalín skoruðu fyrir Ólsara auk þess sem eitt mark kom úr vítaspyrnu. Eftir sigurinn eru Ólsarar komnir með 16 stig á toppi deildarinnar. Fjölnismenn hafa 15 stig en leikur þeirra gegn Hetti á Egilsstöðum stendur yfir. Í Breiðholti stefndi allt í annan sigur Leiknis í deildinni í röð. Ólafur Hrannar Kristjánsson kom heimamönnum yfir seint í fyrri hálfleik. Í viðbótartíma fengu gestirnir frá Sauðárkróki vítaspyrnu sem Ben Everson skoraði úr. Mikilvægt stig fyrir Stólana en heimamenn gráta vafalítið stigin töpuðu. Tindastóll er kominn með átta stig úr átta leikjum og situr í 9. sæti deildarinnar. Uppskera Leiknis er sjö stig og liðið enn í fallsæti. Í Laugardal vann Þróttur sinn fyrsta sigur þegar KA-menn komu í heimsókn. Andri Gíslason kom heimamönnum yfir eftir stundarfjórðung en Davíð Rúnar Bjarnason jafnaði um miðjan síðari hálfleikinn. Líkt og í bikarleiknum gegn Valsmönnum á dögunum var Karl Brynjar Björnsson hetja Laugdælinga. Miðvörðurinn skoraði sigurmarkið á 72. mínútu og bjartari tímar framundan hjá Þrótti. Upplýsingar um markaskorara frá Úrslit.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Mikil spenna í Færeyjum enda HM-sætið enn möguleiki Fótbolti „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Mark Cuban mættur aftur Körfubolti Fleiri fréttir Rosenörn yfirgefur FH Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Sjá meira