Tapið gegn Chelsea situr enn í Messi 23. júní 2012 12:30
Argentínumaðurinn ótrúlegi, Lionel Messi, segist enn eiga mikið eftir ólært í knattspyrnufræðunum og að hann eigi enn eftir að ná sína allra besta fram. Messi segir enn fremur að hann njóti þess í botn að spila og dagurinn sem hann hætti að hafa gaman af boltanum sé dagurinn sem hann hætti. "Fótbolti er leikur og ég reyni að hafa gaman á vellinum. Ég spila fótbolta vegna þess að mér finnst það gaman enda hætti ég þegar það verður leiðinlegt að spila," sagði Messi og bætir við að leikurinn hafi mikið breyst. "Nú spila lið meira upp á úrslit en að spila góðan fótbolta. Það vantar fleiri leikmenn sem hafa ástríðu fyrir góðum fótbolta." Þó svo Messi hafi verið hreint ótrúlegur síðustu ár segir hann að meira sé á leiðinni. "Ég er að spila með einu besta liði sögunnar. Ég er mjög þakklátur fyrir allt sem ég hef náð að afreka. Ég vil líka vaxa og þroskast sem leikmaður. Ég á enn mikið eftir ólært. "Ég er aldrei að leika neitt. Ég er bara eins og ég er. Ég er bara 24 ára gamall." Þó svo gleðistundirnar á ferli Messi séu margar þá hefur stundum gefið á bátinn líkt og á síðasta tímabili er Barcelona datt út úr Meistaradeildinni gegn Chelsea. Messi klúðraði mikilvægri vítaspyrnu í síðari leiknum. "Mér líður enn illa yfir því. Ég er reiður út í sjálfan mig því ég vissi að ég væri með leikinn í mínum höndum. Þetta er samt í fortíðinni en þetta var erfið stund sem ég hugsa enn um."Argentínumaðurinn ótrúlegi, Lionel Messi, segist enn eiga mikið eftir ólært í knattspyrnufræðunum og að hann eigi enn eftir að ná sína allra besta fram. Messi segir enn fremur að hann njóti þess í botn að spila og dagurinn sem hann hætti að hafa gaman af boltanum sé dagurinn sem hann hætti. "Fótbolti er leikur og ég reyni að hafa gaman á vellinum. Ég spila fótbolta vegna þess að mér finnst það gaman enda hætti ég þegar það verður leiðinlegt að spila," sagði Messi og bætir við að leikurinn hafi mikið breyst. "Nú spila lið meira upp á úrslit en að spila góðan fótbolta. Það vantar fleiri leikmenn sem hafa ástríðu fyrir góðum fótbolta." Þó svo Messi hafi verið hreint ótrúlegur síðustu ár segir hann að meira sé á leiðinni. "Ég er að spila með einu besta liði sögunnar. Ég er mjög þakklátur fyrir allt sem ég hef náð að afreka. Ég vil líka vaxa og þroskast sem leikmaður. Ég á enn mikið eftir ólært. "Ég er aldrei að leika neitt. Ég er bara eins og ég er. Ég er bara 24 ára gamall." Þó svo gleðistundirnar á ferli Messi séu margar þá hefur stundum gefið á bátinn líkt og á síðasta tímabili er Barcelona datt út úr Meistaradeildinni gegn Chelsea. Messi klúðraði mikilvægri vítaspyrnu í síðari leiknum. "Mér líður enn illa yfir því. Ég er reiður út í sjálfan mig því ég vissi að ég væri með leikinn í mínum höndum. Þetta er samt í fortíðinni en þetta var erfið stund sem ég hugsa enn um."
Spænski boltinn Mest lesið Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti Fótbolti Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Rafíþróttir Ekki búið að ræða við mögulega eftirmenn Amorim Fótbolti Þrefaldur heimsmeistari í slagsmálum á kebabstað Sport Evrópa marði Ryder-bikarinn á dramatískan hátt Golf „Ef menn trúa því getum við farið ansi langt“ Fótbolti „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Fótbolti Sjáðu endurkomusigur Arsenal og fyrsta mark Watkins Fótbolti „Til að vera með í einhverri baráttu þurfum við að sýna betri frammistöðu“ Fótbolti „Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora“ Fótbolti Fleiri fréttir Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Sjáðu Elmar skora beint úr horni, tvennu Freds og þrennu Hermanns Ekki búið að ræða við mögulega eftirmenn Amorim Sjáðu endurkomusigur Arsenal og fyrsta mark Watkins Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti „Til að vera með í einhverri baráttu þurfum við að sýna betri frammistöðu“ „Ef menn trúa því getum við farið ansi langt“ „Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora“ „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Uppgjörið: Fram - Valur 2-0 | Titildraumar Vals að verða að engu „Við þurfum að horfa inn á við“ María skorað þriðjung marka Linköping í deildinni Börsungar á toppinn Fiorentina enn án sigurs eftir jafntefli í Toskana-slagnum Uppgjörið: Afturelding - KA 3-2 | Heimamenn sluppu með sigurinn Dramatík í uppbótartímanum Villa kláraði dæmið í byrjun seinni hálfleiks Uppgjörið: Vestri - ÍBV 0-5 | Enn syrtir í álinn hjá Vestra Gunnar Heiðar hættur með Njarðvík Sandra María með tvö mörk annan leikinn í röð Ólafur aðstoðar Þorstein með landsliðið „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Aðeins sá sjötti til að skora tvö sjálfmörk í einum leik Slot varpaði sökinni á Frimpong Nik hættir með Breiðablik og tekur við Kristianstad Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Sveinn Aron skoraði beint úr aukaspyrnu „Sætið tryggt og nú er að klára forsetabikarinn“ Sjáðu mörkin úr Bestu-deild karla í kvöld Uppgjörið: Keflavík - HK 4-0 | Keflavík í Bestu deildina Sjá meira