Pakkað af bleikju í Rugludalshyl Garðar Örn Úlfarsson skrifar 30. júní 2012 08:15 Neðan bæjarins Blöndudalshóla eru margir álitlegir veiðistaðir. Mynd/Garðar
Sjö manna holl sem var við veiðar á tveimur efstu svæðum Blöndu um síðustu helgi kom þaðan laxlaust. Bleikjan í Rugludalshyl bjargaði andliti hópsins. Veiðar hófust á þremur efstu svæðum Blöndu í síðustu viku. Opnunarhollin á svæðum III og IV fengu tvo laxa hvort. Sjö manna hópi sem kom þar á eftir og var við veiðar á báðum þessum svæðum í þrjá daga varð ekki eins vel ágengt.Tíðindi af löxum Mannskapurinn kom sér fyrir í veiðihúsinu á Eiðsstöðum síðdegis á föstudag. Til skiptanna voru sex stangir; þrjár á svæði III sem er neðan útfalls Blönduvirkjunar og þrjár á svæði IV sem er ofan útfallsins og því tær þegar miðlunarlón virkjunarinnar er ekki á yfirfalli. Frést hafði af því að lax hefði veiðst fyrstu tvo daga tímabilsins á hinum geysifallega stað Breiðunni á svæði IV og síðan tveir laxar neðst á svæði III. Skemmst er frá því að segja að fyrstu tvær vaktirnar urðu menn lítið varir við lax. Einn taldi sig þó hafa heyrt máttugt laxaskvamp í Skurðinum, sem er efsti veiðistaðurinn á svæði III. Hnippt var í færið hjá öðrum í Sandhólahyl en taldi sá að þar hefði urriði verið á ferð.Ofurhugar í leiðangur Fyrsta kvöldið sögðu reynslumeiri Blöndumenn í hollinu þeim yngri sögur af bleikju sem hafa mætti ef menn legðu á sig strangt ferðalag efst á svæði IV; upp í Rugludalshyl. Sá galli væri á gjöf Njarðar að ganga þyrfti ofan í snarbratt gil ofan af Eyvindarstaðaheiði – og upp þaðan aftur. Var ekki á ungu mönnunum að skilja að það yrði mikil fyrirstaða. Varð úr að ungliðadeildin hélt fyrsta morguninn glaðbeitt upp í Rugludal. Sögðust þremenningarnir mundu snúa aftur í síðasta lagi klukkan tvö. Og væru þeir ekki komnir í hús klukkan fimm væri hinum velkomið að telja þá af og skipta með sér bjórnum þeirra og öðrum lausamunum. Á meðan æskulýðurinn var á fjallinu huguðu hinir miðaldra að laxi. Sólin skein í heiði og mýið fór á kreik. Laxinn lét hvorki sjá sig né heyra.Krökkt af bleikju Framan af hádegishléinu spurðist ekkert til Rugludalsmanna. Loks þegar klukkan var langt gengin í fjögur sást mikil rykmökkur þokast eftir veginum ofan af Eyvindarstaðaheiði. Nokkru síðar renndu piltarnir í hlað á Eiðsstöðum. Meginfréttirnar ofan úr Rugludal voru þær að þar væri pakkað af vænni bleikju á efstu veiðistöðunum. Komu drengirnir með fjögur sýnishorn því til sönnunar. Þeir voru sammála um að sjaldan hefðu þeir lent í annarri eins þrekraun og að ganga brattann upp á heiðina aftur. En ánægðir voru þeir og í sólskinsskapi.Laxinn sýnir sig og tekur Draga fór til tíðinda á næstu kvöldvakt. Þá sást fiskur í einum hyljanna um mitt svæði IV. Áhöld eru um nafnið á staðnum þar sem veiðikortinu ber ekki saman við aðstæður í Blöndudal. En staðurinn er merktur númer 410 og þar voru að minnsta kosti fimm laxar þetta laugardagskvöld. Fyrir þá voru settar margar flugur sem þeir litu vart við. Lax hélt sig í þessum hyl áfram en ekki tókst þar betur upp á næstu vöktum. Á sunnudagsmorgun sást loks lax á Breiðunni. Hann tók þegar fimm mínútur lifðu af vaktinni. Veiðimaðurinn rak upp gól og hagræddi sér glottandi á bakkanum. Þá var fiskurinn af aftur. NEI!Hirti línuna alla Í framhaldinu tókst að setja í þrjá laxa neðarlega og neðst á svæði III. Allir þessir fiskar slitu sig lausa. Einn risalax lét ekki nægja að rífa sig af agninu heldur straujaði niður þungan strauminn með varnarlausan veiðimanninn titrandi á bakkanum löngu eftir að öll línan var farin út af hjólinu og horfin í heilu lagi út í Blöndu. Bless..!Mynd / Garðar
Stangveiði Mest lesið 17 stórlaxar á land fyrsta daginn í Víðidalsá Veiði Gæsaveiðin fer ágætlega af stað Veiði Byssusýning Veiðisafnins um næstu helgi Veiði Hver að verða síðastur að þreyta skotpróf Veiði Rjúpnaveiðin byrjar 20. október Veiði Fimm laxar yfir 100 sm í Laxá Veiði Urriðinn mættur við Kárastaði Veiði Hreinsun Elliðaánna fer fram næsta þriðjudag Veiði Fín fyrsta helgi í rjúpu Veiði Heldur minni gæsaveiði í haust Veiði