Efnahagur EVE Online verður fyrir árás á morgun 27. apríl 2012 22:53 Það er bandalagið Goonswarm sem stendur að baki árásinni en hún hefur fengið heitið "Burn Jita." mynd/CCP
Spilarabandalag í EVE Online tölvuleikjaheiminum mun gera atlögu að efnahag leiksins á morgun. Stjórnendur EVE hrósa hins vegar spilurunum fyrir áætlunina. Það er bandalagið Goonswarm sem stendur að baki árásinni en hún hefur fengið heitið „Burn Jita" - Jita er eitt fjölsóttasta sólkerfi EVE Online og þar fer stór hluti viðskipta fram. Það er hinn óttalausi leiðtogi Goonswarm, Alexander Gianturco (einnig þekktur sem „The Mittani"), sem skipuleggur árásina. Orrustan verður vafalaust tilkomumikil en um 14 þúsund spilarar munu taka þátt í henni. Samkvæmt tölvuleikjavefsíðunni Eurogamer á árásin að hefjast á morgun en hún gæti allt eins hafa byrjað fyrr í dag.mynd/CCPStjórnendur EVE Online eru þó rólegir. Einn af hönnuðum EVE, Kristoffer Touborg, sagði í dag að árásin væri nákvæmlega það sem tölvuleikurinn væri hannaður fyrir - hópefli og samstarf spilara, ásamt beinskeyttum vilja til að sigra. „Þetta er nákvæmlega það sem gerir EVE Online að svo góðum tölvuleik," sagði Touborg. „Hvort vilt þú spila 15 mínútna skotbardaga í Call of Duty eða eyða fjórum mánuðum í safna 14 þúsund leikmönnum og vinum til að bylta innviðum tölvuleiksins sjálfs." Þá sagði Touborg að árásin gæti í raun haft jákvæðar afleiðingar fyrir efnahag EVE Online. Þúsundir spilara munu glata vistum og geimskipum (og ærunni auðvitað) og þurfa um hæl að fjárfesta í nýjum búnaði.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira