Manchester United úr leik í Evrópudeildinni - tapaði 1-2 á Spáni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. mars 2012 17:30 Mynd/AP
Manchester United er úr leik í Evrópudeildinni efrir 1-2 tap á móti spænska liðinu Athletic Bilbao í seinni leik liðanna í 16 liða úrslitum keppninnar en Athletic Bilbao vann fyrri leikinn 3-2 á Old Trafford og því 5-3 samanlagt. Manchester United er þar með búið að tapa þremur Evrópuleikjum í röð og alls fjórum af síðustu fimm leikjum sínum í Meistaradeildinni og Evrópudeildinni. Líkt og í fyrri leiknum í Manchester í síðustu viku þá vann Athletic Bilbao sannfærandi sigur í kvöld. Fernando Llorente kom Athletic Bilbao í 1-0 á 23. mínútu með frábæru viðstöðulausu skoti eftir langa sendingu frá Fernando Amorebieta. Markið hafði ekki mikinn aðdrganda en Bilbao voru búnir að byrja miklu betur og Iker Muniain átti meðal annars skot í stöng á 14. mínútu. Llorente þurfti að yfirgefa völlinn strax á 39. mínútu vegna meiðsla og þrátt fyrir aukinn sóknarþunga þá náðu leikmenn Manchester United ekki að jafna leikinn fyrir hálfleik. Andoni Iraola fékk frábært tækifæri til að koma Bilbao tveimur mörkum yfir á 55. mínútu eftir að hafa fíflað alla United-vörnina en skot hans fór framhjá. Bilbao var með öll völd á vellinum og Oscar De Marcos gerði endanlega út um þetta með því að koma sínu liði í 2-0 á 65. mínútu. Wayne Rooney minnkaði muninn á 80. mínútu með frábæru langskoti upp í bláhornið en markið kom of seint og enn eitt Evróputapið hjá United því staðreynd.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Síðasti dansinn hjá Kelce? Sport Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Goðsögn fallin frá Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Féll úr skíðalyftu og lést Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Var frústreraður vegna landsliðsins Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Sjá meira