Romney safnaði 1,5 milljónum dala á einu kvöldi 13. febrúar 2012 10:12 Mitt Romney, er í miklum ham.
Mitt Romney, sem nú reynir að hvað hann getur til þess að verða forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í nóvember nk., safnaði um 1,5 milljón dollara, um 183 milljónum króna, á söfnunarkvöldverði í Washington DC fyrr í vikunni. Þar voru samankomnir 650 auðugir Repúblikanar sem voru ánægðir með það sem Romney hafði að segja. „Ég er eini frambjóðandinn sem hefur aldrei unnið neitt í Washington,“ sagði Romney og uppskar lófaklapp. Á vefsíðu Wall Street Journal segir að Romney reyni nú hvað hann geti til þess að efla stuðning við framboð sitt hjá atvinnurekendum í Bandaríkjunum, og kvöldverðurinn hafi verið liður í því. Eftir að mótframbjóðandi hans, Rick Santorum, vann sigur í þremur mikilvægum fylkjum, Missouri, Minnesota og Colorado, hefur verið á brattann að sækja hjá Romney. Samkvæmt reglulegum könnunum CNN nýtur hann þó víðtækasta stuðningins meðal þeirra sem eru að berjast fyrir útnefningu Repúblikanaflokksins.
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira