Viðskiptajöfnuður Danmerkur 2.000 milljarðar í plús 8. febrúar 2011 10:02
Viðskiptajöfnuður Danmerkur á síðasta ári sló öll fyrri met. Viðskiptajöfnuðurinn var hagstæður um 93,6 milljarða danskra kr. eða tæplega 2.000 milljarða kr. Fyrra met í afgangi á viðskiptajöfnuðinum í Danmörku var sett árið 2005 en þá var hann hagstæður um rúma 67 milljarða danskra kr. Samkvæmt upplýsingum frá dönsku hagstofunni skýrist þetta einkum af miklum afgangi af vöruskiptum og þjónustu en sá afgangur nam tæpum 100 milljörðum kr. Og það var einkum fjórði ársfjíorðungur síðasta árs sem kom vel út en jöfnuðurinn á því tímabili nam tæpum 30 milljörðum danskra kr. sem er rúmlega 11 milljörðum danskra kr. betri niðurstaða en á sama tímabili árið áður. Steen Bocian aðalhagfræðingur Danske Bank segir að þennan mikla afgang megi einkum rekja til þess að verulega hefur dregið úr innflutningi til Danmerkur í kreppunni þar sem almenningur hefur sparað við sig innkaup í kreppunni. Þá er Danmörk ennþá nettóútflytjandi á olíu en olíuverð á heimsmarkaði hækkaði verulega á síðasta ári. Bocian nefnir einnig að dönsku skipafélögin hafi notið góðs af uppsveiflunni í Asíu löndum á síðasta ári.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira