Fanga gamla tíma í nýju blaði 15. desember 2011 10:15 Gefa út tímarit Guðmundur Jörundsson og starfsmenn herrafataverslunar Kormáks & Skjaldar gefa út tímaritið Spjátrung í dag. Fréttablaðið/anton „
Við fengum þessa hugmynd í sumar og erum búnir að vinna í blaðinu síðan þá,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnuður um nýtt tímarit herrafataverslunar Kormáks & Skjaldar, Spjátrung. Tímaritið kemur út í dag en þar er að finna ýmsan fróðleik varðandi herrafatnað og þau merki sem verslunin selur. Blaðið er svo myndskreytt af ljósmyndaranum Baldri Kristjánssyni en Guðmundur staðfestir að mikið sé lagt í fagrar myndir. „Það er gamaldags blær yfir blaðinu og sett upp í gömlu dagblaðaformi. Það eru til dæmis fyndnar auglýsingar og stuttar skemmtisögur frá starfsmönnum búðarinnar,“ segir Guðmundur, en það eru starfsmennirnir sem sjá um að skrifa í tímaritið. „Við stefnum á að gefa það út tvisvar á ári og lítum á blaðið sem góða heimild fyrir okkur í framtíðinni um það sem er að gerast í dag,“ segir Guðmundur, sem sá um að hanna nýja herrafatalínu verslunarinnar sem gerð eru góð skil í blaðinu. Blaðinu verður dreift með eftirtektarverðum hætti en þeir hafa fengið til liðs við sig stráka úr leikfélagi Menntaskólans við Hamralíð sem ætla að hlaupa um bæinn og dreifa blaðinu til vegfarenda. „Þeir eiga að minna á gamla tíma og verða klæddir upp eins og blaðburðardrengir.“ Útgáfu blaðsins verður fagnað í kvöld klukkan 20 í versluninni í Kjörgarði.- áp
Lífið Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Lífið Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Lífið Notch setur glæsihúsið á sölu Leikjavísir Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Bíó og sjónvarp Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Tónlist Fleiri fréttir Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Linda Dröfn og Tótla sjóðheitt par „Ég var alveg skelfingu lostinn“ Vaknaði við öskur móður sinnar og vissi strax hvað hafði gerst Krakkatía vikunnar: Illmenni, bofs og Einar Áskell Sjá meira