Fincher orðaður við Angelinu og Kleópötru 19. maí 2011 21:00 Angelina Jolie er með alla anga úti um þessar mundir og er meðal annars sögð spennt fyrir hlutverki Kleópötru.
Bandaríski leikstjórinn David Fincher er sagður vera í viðræðum við framleiðandann Scott Rudin um að leikstýra stórmyndinni Kleópötru. Rudin og Fincher unnu saman að gerð The Social Network og Rudin hefur þegar tryggt sér þjónustu Angelinu Jolie í titilhlutverkið. Leikkonan ku vera mjög áhugasöm um að fá Fincher, sem hefur auðvitað haldið sambýlismanni hennar, Brad Pitt, á floti með kvikmyndum á borð við Seven, Fight Club og The Curious Case of Benjamin Button. Fincher er nú að leggja lokahönd á kvikmyndina Karlar sem hata konur eftir bók Stiegs Larsson og svo er á dagskránni að leikstýra neðansjávarmyndinni 20,000 Leagues Under the Sea. Samkvæmt fréttasíðu Indie Wire vonast Rudin til að Fincher setji það verkefni til hliðar og fallist á að leikstýra myndinni um drottningu Egyptalands eftir handriti Brians Helgeland. Jolie sjálf gæti raunar sjálf orðið upptekin á næstunni því hún á að leika í kvikmyndinni Maleficent sem Tim Burton hugðist leikstýra. Hann er nú hættur og Disney leitar logandi ljósi að arftaka hans. Jolie hefur næg járn í eldinum og hyggst framleiða kvikmyndina Churchill og Roosevelt með Anthony Hopkins. Leikkonan hefur hins vegar vísað því á bug að hún hyggist leikstýra þeirri mynd sjálf.
Skilnaður Angelinu Jolie og Brad Pitt Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Taskmaster Ísland snýr aftur Lífið Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira