Að skapa er partur af því að vera til 20. apríl 2011 20:00 Ágúst Borgþór Sverrisson. Fréttablaðið/GVA
Ágúst Borgþór Sverrisson hefur á undanförnum árum getið sér orð fyrir smásagnagerð. Nýlega sendi hann frá sér nýja nóvellu, Stolnar stundir, sem dregur dám af hans eigin lífi – og þó ekki. Stolnar stundir fjallar um Þóri, þýðanda og fjölskyldumann sem meðfram vinnu- og heimilisskyldum situr á kaffihúsum og skrifar smásögur í laumi. Þegar ókunnug kona hringir í skakkt númer og eiginkona Þóris verður fyrir svörum, hefst hins vegar atburðarás þar sem friðsælu fjölskyldulífi er stefnt í hættu. Ágúst Borgþór á ýmislegt sammerkt með Þóri. Hann er líka þýðandi og fjölskyldumaður, sem oft situr á kaffihúsum í miðbænum og skrifar skáldskap. Fjalla Stolnar stundir um hann sjálfan? „Að einhverju leyti er þetta smá leikur," útskýrir Ágúst Borgþór. „Þegar ég var að skrifa þessa sögu rann fljótlega upp fyrir mér að ég var að skrifa um minn reynsluheim, það er heilmikill 101-bragur á þessu. Og í stað þess að reyna að fela það ákvað ég að að ganga alla leið með það. Það er því ýmislegt sem við Þórir eigum sammerkt, vinnustaðir okkar eru nákvæmlega eins og dætur okkar lituðu báðar á sér hárið." Þess háttar atriði ráði hins vegar ekki úrslitum um hvernig fólki er. „Þeir sem þekkja mig mjög vel taka líklega eftir að ég er að mörgu leyti mjög ólíkur þessum manni; hjónaband okkar er mjög ólíkt; hann byrjar að skrifa um fertugt og heldur því leyndu en ég byrjaði að blaðra um það þegar ég var sextán ára að ég ætlaði að verða rithöfundur. Það má því kannski túlka þetta sem dálitla pælingu um mörk einstaklinga; Þórir er alls ekki ég – en við komum úr sama reynsluheimi." Ágúst Borgþór viðurkennir þó að ýmislegt í bókinni sé sjálfsævisögulegt, til dæmis glíman við að vera rithöfundur meðfram fullu starfi og fjölskyldulífi. „Ég man eftir því þegar ég kom næstum því grenjandi heim af foreldrafundi þar sem var verið að skipuleggja tónleikaferðalag fyrir dóttur mína. Ég var að vinna á auglýsingastofu, sem hentaði ágætlega upp á skriftirnar að gera. Það sem setti strik í reikninginn var hins vegar fjölskyldulífið; í stað þess að verja kvöldunum í skriftir þurfti ég að selja klósettpappír. Á þeim tímapunkti rann það upp fyrir mér að ég væri orðinn maður sem fer í fýlu yfir að dóttir hans kemst í tónleikaferðalag!" Ágúst Borgþór hefur hingað til einbeitt sér að smásögum og nóvellum, að ógleymdu blogginu, sem líta má á sem hluta af höfundaverki hans. Hvers vegna höfðar þetta form svona sterkt til hans? „Það má kannski rekja til þess þegar ég fór að ná valdi á því að skrifa eitthvað sem var þess virði að birta," segir hann. „Lestraráhugi minn varð mun beinskeyttari fyrir vikið; ég leitaðist aðallega við að lesa það sem gat komið mér að gagni við skriftir og oftar en ekki voru það smásögur. Bandarísk smásagnagerð stóð í miklum blóma á 9. áratugnum og það má segja að formið hafi náð algjörum tökum á mér. En nú finnst mér ég vera reiðubúinn til að skrifa lengri verk jafnt sem smásögur og geri ráð fyrir að næsta verk verði skáldsaga upp á 250 síður eða svo. En ég er rétt byrjaður á henni." Auk þess að skrifa hefur Ágúst Borgþór kennt á smásagnanámskeiðum, sem hann segir bæði hafa styrkt sig sem höfund og opnað augu sín fyrir því hversu margir fást við skriftir í raun og veru. „Það eru ótrúlega margir að skrifa. Og þetta virðist vera tilneigingin þegar maður lítur heilt yfir listgreinarnar. Á tímum þar sem ríkir velmegun og menntunarstigið er hátt sér maður að það verður partur af mannlegu hlutskipti að vera skapandi." bergsteinn@frettabladid.is
Lífið Mest lesið „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Lífið Syrgir gamla íslenska skyrið: „Nánast með verstu menningarglæpum okkar sögu“ Menning Valdi hættur að spila í neðri deildunum Lífið Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ Lífið Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Lífið Heillandi arkitektúr í Garðabæ Lífið Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Lífið Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Lífið Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Lífið Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Lífið Fleiri fréttir Tíramísú sem morgunmatur fyrir alla fjölskylduna Innsýn í molnandi hjónaband: „Persónuleikinn þinn var ekki svona fyrir nokkrum árum“ „Yngsti „self made“ milljónamæringur undir þrítugu“ Heillandi arkitektúr í Garðabæ Valdi hættur að spila í neðri deildunum Gugga í gúmmíbát fagnaði afmæli sínu með heitustu guggum landsins Hall og Oates ná sáttum Embla Wigum og Lindsey Lohan glæsilegar á rauða dreglinum Hannaði innsetningargallann í þrívíddarforriti vegna tímaþröngar Hóta enn á ný að úthýsa vinsælli „spýtukarlanekt“ Hugleiks Skjótt skipast veður í slaufun: Íhugar endurkomu Ragnheiður og Benedikt eiga von á jóladreng Fagnar því að hafa klárað „erfiðustu kappreiðar í heimi“ Ragga Nagli minnir á „grænu flöggin“ í samböndum Stjúpbörn- og foreldrar: „Alltof mörg tilfelli þar sem þetta gengur ekki nógu vel“ Elín Dís og Sigurður keyptu raðhús í Fossvogi á 175 milljónir Söguleg sátt milli há- og lágmenningar á Klapparstíg Anton Corbijn heiðursgestur RIFF Með um 300 tegundir af rósum í garðinum sínum Jóhann Alfreð og Valdís keyptu hús í Mosfellsbæ Fyrsta tónlistarfólkið á almyrkvahátíðinni kynnt til leiks Opnaði sig um skilnaðinn: „Hún eldar ekki, þrífur ekki og virðist ekki mjög móðurleg“ Aldraður boltasækir steig síðasta dansinn Suðrænn og ferskur þeytingur að hætti Jönu Eva Laufey og Haraldur stækka við sig á Skaganum „Dýrmætt að fá að hafa þetta svona persónulegt“ Eigendaskipti á Kaffi Laugalæk: Breyta til en lofa sömu stemningu Leifur Andri og Hugrún trúlofuð Fyrstu skrefin tekin á sama stað og símtalið um fæðinguna barst Stjörnulífið: Ástin, glimmer og ofurkroppar Sjá meira