Þyrst olíumiðlun á bakvið verðhækkanir á olíu 20. janúar 2011 09:25
Kaup bandarískrar olíumiðlunar á miklu magni af hráolíu úr Norðursjó gæti ýtt heimsmarkaðsverðinu á olíu yfir 100 dollara á tunnuna. Daily Telegraph fjallar um málið en í frétt blaðsins kemur fram að olíuviðskiptafélagið Hecto hafi byggt upp gríðalega stöðu í breska hlutanum af olíuvinnslunni í Norðursjó. Hefur Hecto keypt 30% af framleiðslunni á Forties svæðinu, sem er það stærsta í Norðursjó og 25% af framleiðslunni frá Brent svæðinu. Olíuna á að afhenda í febrúar. Þessi kaup eru það umfangsmikil að þau hafa haft veruleg áhrif á verðþróun olíu að undanförnu. Þannig hefur svokölluð Brent olía frá Norðursjó hækkað upp í 98 dollara á tunnuna að undanförnu en verðið á Brent olíunni er notað til viðmiðunar í um þriðjungi af öllum olíuviðskiptum í heiminum. Á meðan hefur bandaríska léttolían, WTI, „aðeins" hækkað í 92 dollara. Telegraph segir að þessi munur á Brent og WTI, sex dollarar, sé í sögulegu hámarki. Þá kemur fram að Hecto hafi jafnvel í hyggju að kaup enn meira magn af hráolíu úr Norðursjó. Hinsvegar gengur nú orðrómur um í olíuviðskiptaheiminum að Hecto hafi síðustu þrjá daga reynt að finna kaupenda að olíunni í febrúar en án árangurs.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira