Rússi gripinn við að smygla smjöri til Noregs 12. desember 2011 07:00
Norski tollurinn stoppaði Rússa með ólöglegt smjör á landamærunum við Svíþjóð í bænum Svinesund um helgina. Rússinn ætlaði að smygla 90 kílóum af smjöri til Noregs í flutningabíl sínum en komst ekki undan árvökulum augum norskra tollvarða. Smjörkreppan í Noregi virðist ágerast eftir því sem nær dregur jólunum. Verðið á kílói af smjöri er komið í 800 norskar krónur eða rúmlega 16.000 krónur fyrir kílóið á netinu að því er segir í frétt í blaðinu Verndens Gang. Þar er jafnframt haft eftir kúabónda að hann hefði auðveldlega getað aukið framleiðslu sína á smjöri um 20% í ár ef sektir við slíku hefðu verið afnumdar, eins og raunar gert var í þessum mánuði. Matvælaeftirlit Noregs hefur varað almenning þar í landi við því að kaupa smjör frá framleiðendum sem ekki eru þekktir í landinu.
Mest lesið Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Viðskipti innlent Kappahl og Newbie opna á Íslandi Viðskipti innlent Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Viðskipti innlent Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Í hóp fimm milljarðamæringa úr tónlistarsenunni Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Ekkert verður úr TikTok-banni með nýjum samningi Hæstu stýrivextir í þrjátíu ár Höfnuðu yfirtökutilboði Paramount Messenger-forritið heyrir sögunni til Lofar að koma böndum á CNN Reyna fjandsamlega yfirtöku á Warner Bros. Kaup Netflix á hluta Warner Bros. gætu reynst „vandamál“ ESB sektar samfélagsmiðil Musk um milljarða Google birtir lista yfir vinsælustu leitarorðin Netflix í viðræðum um kaup á HBO frá Warner Bros Hringir viðvörunarbjöllum vegna samkeppni frá Google „Brunaútsala“ á hlutabréfum eftir eldsvoðann í Hong Kong Sjá meira