Ungverjaland í ruslflokk 26. nóvember 2011 00:06 Staðan í Ungverjalandi er afar slæm.
Lánshæfismatsfyrirtækið Moody's lækkaði í dag lánshæfiseinkunn Ungverjalands niður í ruslflokk. Ástæðan var mikill skuldavandi og veikar vonir um hagvöxt. Þá er enn talin vera mikil óvissa um hvort landið nær að standa á eigin fótum í efnahagslegu tilliti. Frá því að Ungverjar fengu 20 milljarða evra að láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum árið 2008 hefur ekki tekist nægilega vel að örva hagkerfi landsins. Nú er jafnvel litið svo á að landið verði að fá neyðaraðstoð á nýjan leik. Efnahagur margra ríkja í Evrópu stendur nú afar veikum fótum. Lánshæfismat Portúgals var fyrr í dag lækkað niður í ruslflokk og Ítalía, Spánn og Grikkland standa höllum fæti. Einkum hafa fjárfestar áhyggjur af Ítalíu, þriðja stærsta hagkerfi Evrópu á eftir því þýska og franska.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira