Börsungar skoruðu fjögur gegn Zaragoza Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 19. nóvember 2011 00:01 David Villa fagnar marki sínu í kvöld. Nordic Photos / Getty Images
Barcelona gaf ekkert eftir í toppbaráttu spænsku úrvalsdeildarinnar með 4-0 sigri á Real Zaragoza í kvöld. Liðið er þar með jafnt Real Madrid að stigum en Madrídingar eiga leik til góða. Gerard Pique kom Börsungum yfir á átjándu mínútu með öflugum skalla eftir fyrirgjöf Xavi úr aukaspyrnu. Lionel Messi var svo næstur á ferðinni með afar snoturt mark sem hann skoraði eftir stungusendingu Cesc Fabregas. Staðan í hálfleik var 2-0 en eftir aðeins átta mínútna leik í seinni hálfleik kom mark númer þrjú. Carles Puyol var á réttum stað og skoraði af miklu harðfylgi eftir að Seydou Keita skallaði niður háan bolta í teig Zaragoza. Fjórða og síðasta markið kom þegar rúmur stundarfjórðungur var til leiksloka. Gestirnir misstu boltann á eigin vallarhelmingi, Isaac Cuenca náði sendingunni fyrir markið þar sem David Villa var mættur og skoraði af miklu öryggi. Real Madrid mætir Valencia klukkan 21.00 og má fylgjast með gangi mála hér á Vísi. Með sigri endurheimtir liðið þriggja stiga forystu á toppi deildarinnar en Valencia er í þriðja sæti deildarinnar og getur með sigri blandað sér af alvöru í toppbaráttuna.
Spænski boltinn Mest lesið Veittist að sautján ára mótherja sínum og hreytti í hann fúkyrðum Rafíþróttir Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti Fótbolti Evrópa marði Ryder-bikarinn á dramatískan hátt Golf „Ef menn trúa því getum við farið ansi langt“ Fótbolti „Til að vera með í einhverri baráttu þurfum við að sýna betri frammistöðu“ Fótbolti Sjáðu endurkomusigur Arsenal og fyrsta mark Watkins Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Valur 90-89 | Stjarnan náði að halda út og er meistari meistaranna Körfubolti „Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora“ Fótbolti „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Fótbolti „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Enski boltinn Fleiri fréttir Slæm byrjun Chelsea skilaði Bayern sigri Sjáðu endurkomusigur Arsenal og fyrsta mark Watkins Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti „Til að vera með í einhverri baráttu þurfum við að sýna betri frammistöðu“ „Ef menn trúa því getum við farið ansi langt“ „Strákarnir voru alltaf að stríða mér af því ég var ekki búinn að skora“ „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Uppgjörið: Fram - Valur 2-0 | Titildraumar Vals að verða að engu „Við þurfum að horfa inn á við“ María skorað þriðjung marka Linköping í deildinni Börsungar á toppinn Fiorentina enn án sigurs eftir jafntefli í Toskana-slagnum Uppgjörið: Afturelding - KA 3-2 | Heimamenn sluppu með sigurinn Dramatík í uppbótartímanum Villa kláraði dæmið í byrjun seinni hálfleiks Uppgjörið: Vestri - ÍBV 0-5 | Enn syrtir í álinn hjá Vestra Gunnar Heiðar hættur með Njarðvík Sandra María með tvö mörk annan leikinn í röð Ólafur aðstoðar Þorstein með landsliðið „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Aðeins sá sjötti til að skora tvö sjálfmörk í einum leik Slot varpaði sökinni á Frimpong Nik hættir með Breiðablik og tekur við Kristianstad Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Sveinn Aron skoraði beint úr aukaspyrnu „Sætið tryggt og nú er að klára forsetabikarinn“ Sjáðu mörkin úr Bestu-deild karla í kvöld Uppgjörið: Keflavík - HK 4-0 | Keflavík í Bestu deildina Sunderland á fljúgandi siglingu upp töfluna Fyrsta stig Úlfanna í hús Sjá meira