Einar Jónsson: Menn sýndu að við getum verið mjög góðir Elvar Geir Magnússon skrifar 26. september 2011 21:35 Mynd/Valli "
Þeir sem voru að koma til félagsins stóðu sig frábærlega og líka þeir sem við höfðum fyrir," sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir að liðið vann fimm marka sigur á Íslandsmeisturum FH í Kaplakrika í kvöld. Sannkölluð óskabyrjun hjá Safamýrarliðinu sem tefldi fram mörgum nýjum leikmönnum sem svo sannarlega stóðu fyrir sínu. "Við erum bara með flott lið og menn sýndu það í dag að við getum verið mjög góðir. Það sem við lögðum upp með fyrir leikinn gekk nánast fullkomlega upp svo ég er mjög sáttur." Framarar voru með þægilega forystu nánast allan leikinn og FH-ingar ógnuðu þeim lítið. "Ég var nú ekki rónni fyrr en það var svona mínúta eftir. FH liðið er bara svo gott að við gátum ekki leyft okkur að slaka á eins og mér fannst við gera á 5-10 mínútna kafla í seinni hálfleik. Þá bara sýndu þeir að þeir geta valtað yfir okkur. Við héldum haus og kláruðum þetta með miklum sóma," sagði Einar. "Við spiluðum mjög góða vörn og ég gleðst yfir því. Við erum að vinna markvisst að varnarleiknum hjá okkur og ætlum okkur að vera sterkir varnarlega. Við vorum mjög "massívir" og markvarslan kom líka með." Framarar misstu Róbert Aron Hostert en hann meiddist á baki og var fluttur með sjúkrabíl í hálfleik. "Hann lenti mjög illa eftir mjög ljótt brot. Ég veit ekki alveg hversu alvarlegt það er en hann var sárþjáður,“ sagði Einar Jónsson, þjálfari Fram, eftir leikinn.
Olís-deild karla Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Fótboltamaður skotinn til bana Fótbolti Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn Dagskráin í dag: Blikar í Evrópu, Suðurnesjaslagur og van Gerwen mætir til leiks Sport „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Fleiri fréttir Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Sjá meira