Yfirlýsing frá Veigari: Vonandi verður þetta öðrum víti til varnaðar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. september 2011 12:10 Veigar Páll Gunnarsson. Mynd/Stefán
Veigar Páll Gunnarsson hefur sent frá sér yfirlýsingu varðandi brottrekstur sinn úr íslenska landsliðinu á laugardaginn var. Veigar harmar að hafa brotið gegn þeim agareglum sem í gildi voru fyrir A-landslið karla. Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari, setti Veigar Pál út úr hópnum fyrir Kýpurleikinn vegna þess að Veigar Páll braut reglur landsliðsins með því að neyta áfengis þremur dögum fyrir leik. Veigar Páll segist hafa orðið á í messunni og að hanni vonast nú til að þetta mál verði vonandi öðrum víti til varnaðar.Yfirlýsingin frá Veigari: Ég harma að hafa brotið gegn þeim agareglum sem í gildi voru fyrir A-landslið karla síðastliðinn laugardag. Hegðun mín var ófagmannleg og óásættanleg og ég bið félaga mína í A- landsliði Íslands afsökunar svo og alla knattspyrnuáhugamenn, stuðningsmenn og samsarfsaðila Knattspyrnusambandsins. Eftirmál þessa hafa orðið mér dýrkeypt og kostað mig sæti í landsliðinu. Ég sætti mig við orðinn hlut og mun ekki dvelja við þetta mál lengur eða tjá mig frekar um málið. Vonandi verður þetta öðrum víti til varnaðar. Frá því ég var fyrst valinn til að leika fyrir Íslands hönd, hef ég ávallt litið á það sem heiður og forréttindi að leika með íslenska landsliðinu og ég hef jafnan gefið kost á mér þegar til mín hefur verið leitað. Á því hefur ekki orðið nein breyting þó mér hafi nú orðið á í messunni. Ég vil nota tækifærið og óska félögum mínum í landsliðinu velfarnaðar í lokaleik undankeppni EM um leið og ég óska þeim til hamingju með langþráðan sigur gegn Kýpur. Áfram Ísland !
Íslenski boltinn Mest lesið Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti „Ég skulda tannlækninum afsökunarbeiðni“ Sport Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti „Kom fyrstur út úr leikmannagöngunum með augnaráð sem hefði getað drepið“ Fótbolti Notaði eiginmanninn sem héra og vann sitt fyrsta maraþon Sport „Ég var bara millimetrum frá því að lamast“ Sport Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Sögulegt bardagakvöld á Ásbrú: „MMA er ekki ólöglegt“ Sport Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Golf Fleiri fréttir Montiel til KA Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Sjá meira