Fundu risavaxna gullæð í Þýskalandi 24. ágúst 2011 13:53
Fundist hefur risavaxin gullæð í héraðinu Lausitz sem áður tilheyrði Austur-Þýskalandi. Talið er að verðmæti gullsins sé um 9 milljarðar punda eða tæplega 1.700 milljarðar kr. Í frétt um málið í Daily Mail segir að þetta séu kærkomnar fréttir fyrir íbúa Lausitz enda er héraðið eitt það fátækasta í Þýskalandi og atvinnuleysi er mjög mikið eða um 20%. Nú má búast við einhverskonar „Klondike“ æði meðal íbúanna. Félag sem staðið hefur fyrir borunum í héraðinu rakst á þessa gullæð á um 1.300 metra dýpi en um nær hreint gull er að ræða. Þegar hefur verið auglýst eftir 800 námumönnum í Lauistz og búist er við að um tvöfalt fleiri verði ráðnir þegar vinnslan á gullinu hefst fyrir alvöru. Þá segir í fréttinni að sama félag hafi fundið mikið magn af kopargrjóti á landamærum Póllands og Tékklands. Talið er að hægt sé að vinna um 2,7 milljónir tonna af kopar á því svæði. Þar sem heimsmarkaðsverð á kopar er rúmlega 6.000 dollarar á tonnið er ljóst að þarna er einnig um gífurleg auðæfi að ræða.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira