Staða HK versnar enn eftir tap á Selfossi - markalaust í Ólafsvík Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. júní 2011 22:19 Jón Daði Böðvarsson og félagar unnu sinn fyrsta sigur í sumar.
Selfyssingar fögnuðu langþráðum heimasigri í kvöld þegar þeir unnu 4-2 sigur á HK í 5. umferð 1. deildar karla. Selfyssingar höfðu ekki fengið stig í fyrstu tveimur heimaleikjum sínum í sumar a móti Fjölni og ÍA en tryggðu sér mikilvægan sigur í kvöld. Arilíus Marteinsson, Ibrahima Ndiaye, Auðun Helgason og Viðar Örn Kjartansson skoruðu mörk Selfoss í kvöld en Atli Valsson og Hólmbert Aron Friðjónsson skoruðu fyrir HK. Staðan í hálfleik var 3-2 fyrir Selfoss sem komst í 3-1 í leiknum. HK-liðið tapaði þarna þriðja leiknum sínum í röð og er áfram á botninum með aðeins eitt stig af fimmtán mögulegum. Það er því verulega farið að hitna undir Tómasi Inga Tómassyni, þjálfara liðsins, sem er á leiðinni út til Danmerkur sem aðstoðarþjálfari 21 árs landsliðsins. Víkingur úr Ólafsvík og Leiknir gerðu markalaust jafntefli í Ólafsvík þar sem tvö rauð spjöld fóru á loft. Leiknismaðurinn Pape Mamadou Faye var fyrst rekinn útaf en Víkingurinn Edin Beslija fékk líka rautt í lokin. Leiknir hefur þar með gert fjögur jafntefli í fyrstu fimm leikjum sínum og Víkingar hafa gert þrjú jafntefli í sínum fimm leikjum. Hvorugt liðanna hefur náð að vinna leik í fyrstu fimm umferðunum. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar af vefsíðunni fótbolti.net.
Íslenski boltinn Mest lesið Heimir um Ronaldo: „Hans kjánaskapur að ráðast á okkar mann“ Fótbolti Frakkar á HM og Íslandi dugar jafntefli Fótbolti Flutt á sjúkrahús eftir höfuðhögg í Meistaradeildinni Fótbolti Rekinn úr húsi í Breiðholtinu en fyrst fór ruslatunnan á flug Körfubolti Ronaldo sá rautt og óð reiður til Heimis Fótbolti „Í öllum góðum hópum er alltaf einn sem labbar aftur á bak“ Körfubolti Skytturnar héldu fullkomnu flugi Englands áfram Fótbolti Eggert Aron mætir fyrir úrslitaleikinn í Póllandi Fótbolti Gidsel kom í veg fyrir gleði Orra en Viktor varði víti sem Íslendingar dæmdu Handbolti Gaman í íslenska klefanum eftir leik Fótbolti Fleiri fréttir Sjáðu mörk Íslands í Bakú Hlakkar til að standa sig betur í föðurhlutverkinu Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka Sjá meira