Leiðtogar G8 styðja Lagarde í stöðu forstjóra AGS 30. maí 2011 09:11
Allir leiðtogar G8 landanna styðja Christine Lagarde fjármálaraðherra Frakklands í stöðu forstjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Reuters hefur þetta eftir Alain Juppe utanríkisráðherra Frakka. Í frétt Reuters segir að Frakkar hafi passað sig á því að nefna málið ekki opinberlega meðan á G8 fundi stóð í síðustu viku. Nú segir Juppe hinsvegar að allir leiðtogarnir átta, ásamt forseta framkvæmdaráðs ESB, standi á bakvið Lagarde. Bandaríkjamenn hafa ekki viljað gefa upp opinberlega hvern þeir styðja í stöðu forstjóra AGS og er það í samræmi við fyrri stefnu þeirra þegar kemur að þessari stöðu. Helsta hindrunin fyrir Lagarde að verða ráðin næsti forstjóri AGS er hugsanleg rannsókn á þætti hennar í sátt sem gerð var við Bernard Tapie árið 2008. Tapie var viðskiptamaður og einn af stuðningsmönnum Nicolas Sarkozy Frakkalandsforseta. Honum voru greiddar tæpar 300 milljónir evra vegna lagadeilu hans við banka í ríkiseigu. Stjórnarandstaðan í Frakklandi hefur ásakað Lagarde um að hafa misnotað vald sitt þegar hún gekk frá sáttinni við Tapie.
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Tollar kísilframleiðslu í Kína Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Kushner og Sádar ljúka skuldsettri yfirtöku á Electronic Arts eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira