Goldman Sachs spáir 130 dollara olíuverði í árslok 24. maí 2011 10:53
Greining Goldman Sachs spáir því að heimsmarkaðsverð á Brent olíunni fari í 130 dollara á tunnuna í lok þessa árs. Þetta er endurmat á fyrri spá sem gerði ráð fyrir að verðið yrði 120 dollarar. Í morgun hefur olíuverð hækkað aðeins og stendur Brentolían í 111 dollurum á tunnuna. Fjallað er um málið í Financial Times. Þar segir að Goldman Sachs boði að botninn sé dottinn úr þeim lækkunum sem urðu á hrávörum í upphafi maí mánaðar en lækkanirnar voru um 9% að meðaltali. Því mælir bankinn með því við viðskiptavini sína að þeir fjárfesti að nýju í olíu, kopar, zinki og fleiri hrávörum. Financial Times hefur það eftir einum af hrávörusérfræðingum Goldman Sachs að ef OPEC ríkin nái ekki samkomulagi um aukna olíuframleiðslu á fundi sínum 8. júní n.k. mun það þýða verulega lækkun á olíubirgðum í heiminum. Þar að auki hafi ástandið í Líbýu einnig áhrif á olíubirgðirnar. Til samanburðar má geta að JP Morgan spáir því að Brentolían fari í 120 dollara á tunnuna í árslok en spá Barclays Capital hljóðar upp á 112 dollara á tunnuna.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira