Dópsalar tapa tugum milljóna á dag 29. apríl 2011 13:17
Danskir dópsalar tapa nú tugum milljóna kr. á hverjum degi þar sem Kristjanía í Kaupmannahöfn er lokuð og hefur verið svo undanfarna þrjá daga. Það eru íbúar Kristjaníu sem hafa sjálfir lokað staðnum en lokunin er mótmæli gegn áformum stjórnvalda um að gera Kristjaníu að venjulegu íbúðahverfi. Fjallað er um málið í Politiken. Þar er haft eftir Jens Jespersen aðgerðastjóra lögreglunnar á Amager að áætlað sé að hasssalan í Pusher Street í Kristjaníu velti um milljarði danskra kr. á ári. Því megi segja að dópsalarnir tapi um 2,7 milljónum danskra kr., eða nær 60 milljónum kr., veltu á hverjum degi sem Pusher Street er lokað. „Það leikur enginn vafi á því að dópsalarnir tapa verulegri veltu á því að Kristjanía er lokuð," segir Jsepersen. Nýlega lauk dómsmáli fyrir Hæstarétti Danmerkur þar sem niðurstaðan var að stjórnvöld en ekki íbúarnir hafa umráðaréttinn á Kristjaníu. Í framhaldi af því hafa stjórnvöld gert íbúum staðarins tilboð um að þeir geti keypt íbúðir sínar í Kristjaníu á hagstæði verði. Þetta hafa íbúarnir ekki viljað fallast á og fyrr í vikunni gripu þeir til þess ráðs að loka staðinn af með því að byrgja fyrir öllum inn- og útgönguleiðum að Kristjaníu. Aðspurður um hve lengi hann telji að Pusher Street verði lokað segir Jespersen að það verði ekki lengi. „Ætli þeir verði ekki búnir að opna um helgina," segir hann.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira