Verður krökkunum hans Baldurs bongó bannað að tromma í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. apríl 2011 13:00 Valskonur geta orðið Íslandsmeistarar í kvöld. Mynd/Vilhelm
Baldur Orri Rafnsson, tónlistarkennari í Grundarfirði, betur þekktur sem „Baldur bongó“, hefur boðað komu sína á þriðja leik Vals og Fram um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild kvenna í handbolta. Leikurinn hefst klukkan 19.30 í kvöld í Vodafonehöllinni að Hlíðarenda og með sigri tryggir Valur sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Í frétt á mbl.is kemur fram að Baldur bongó ætli að mæta með 30 nemendur sína úr tónlistaskólanum í Grundarfirði og ætli hópurinn að skemmta sér og öðrum á meðal leik stendur. „Það verða nærri 30 blásarar og trommarar með mér í för og því útlit fyrir mikið stuð í Vodafonehöllinni,“ segir Baldur í viðtali á mbl.is. Það er þó óvíst hvort þessi stuðningssveit Valsliðsins sé lögleg. Samkvæmt handbók HSÍ um framkvæmd leikja er aðeins leyfð ein tromma á hvort lið. Baldur er fyrir löngu orðinn þekktur fyrir taktvissan áslátt sinn á leikjum Vals en nú á eftir að koma í ljós hvort nemendur hans fá leyfi til að slá taktinn með honum á leiknum í kvöld. Það er því spurning um hvað eftirlitsmaður leiksins og HSÍ geri fyrst þessar upplýsingar liggi nú allar fyrir.
Olís-deild kvenna Mest lesið Segir Eið Smára ekki fá það hrós sem hann á skilið Sport „Ísland er eini óvinur okkar“ Fótbolti Leiðin á HM: Daðraði við Deschamps fyrir viðtalið Fótbolti Þjálfari tilbúinn að hætta og tyrkneska þjóðin beðin afsökunar Fótbolti Tíu mánaða bann fyrir að taka lyf við hárlosi Fótbolti Sjáðu fundinn í heild: Arnar sat fyrir svörum í Frakklandi Fótbolti Liðsfélagi Elíasar sagður ljúga til um aldur Fótbolti Þeir eiga ekki að sjá eftir neinu Fótbolti „Kann nokkur orð sem ég get ekki sagt hérna“ Fótbolti Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Körfubolti Fleiri fréttir Donni og félagar örugglega áfram í Evrópudeildinni Nýliðar KA/Þórs byrja með sigri Langþráð hjá Melsungen Viggó markahæstur í eins marks tapi KA lagði nýliðana á Selfossi Stórleikur Söndru tryggði ÍBV sigur Hófu titilvörnina með sigri og Sara með stórleik á Ásvöllum „Verður ekki meira svekkjandi en þetta“ Ómar Ingi skyggði á Gidsel Uppgjörið: Stjarnan - Minaur Baia Mare 26-27 | Stjarnan féll úr leik á grátlegan hátt eftir vítakastkeppni Elín Klara markahæst í risasigri Nýliðarnir byrja á góðum sigri Afturelding marði Hauka í Hafnafirði Fram byrjar tímabilið á sterkum útisigri í Kaplakrika Íslendingarnir tryggði Gummersbach sigur Ómar Ingi með sex marka forskot á Gidsel „Gott að ná í tvö stig strax í byrjun“ Uppgjör: Stjarnan - Valur 27-32 | Ágúst Þór fékk óskabyrjun með Valsliðið Ómar með átta úr átta og Donni allt í öllu í sigri „Taugalaus“ Óðinn með þrettán mörk Viggó lék stóra rullu þegar lærisveinar Arnórs frusu Mætti sköllótt til baka aðeins fimm dögum eftir lyfjameðferð Aron hefur engan áhuga á að þjálfa Sjáðu Viktor Gísla fá hópknús eftir að hafa tryggt Barcelona titil Sigursteinn framlengir við FH HSÍ skiptir út merki sambandsins Valur meistari meistaranna Stjörnumenn gerðu vel úti í Rúmeníu Íslensku stelpurnar með tíu mörk saman í flottum sigri „Stórkostlegur dagur og stórkostlegt kvöld“ Sjá meira
Uppgjörið: Stjarnan - Minaur Baia Mare 26-27 | Stjarnan féll úr leik á grátlegan hátt eftir vítakastkeppni