Lúðvík: Hannes er ákveðin fjárfesting Henry Birgir Gunnarsson skrifar 1. apríl 2011 19:00
Lúðvík Arnarson, varaformaður knattspyrnudeildar FH, segir að FH hafi náð mjög góðum samningi við Hannes Sigurðsson en hann mun ekki hverfa á braut fyrir mót líkt og raunin varð með Eyjamanninn Gunnar Heiðar Þorvaldsson. "Við erum mjög sáttir að fá Hannes til okkar enda okkar maður. Þegar okkar menn koma heim viljum við fá þá til okkar," sagði Lúðvík glaður með nýja liðsstyrkinn en er þetta dýr pakki? "Hvað er dýrt og hvað er ekki dýrt í þessu? Ég held að við höfum náð verulega góðum samningum við hann. Hannes hefur auðvitað möguleika á að komast út aftur. Það má segja að þetta sé ákveðin fjárfesting," sagði Lúðvík. Eyjamenn fengu Gunnar Heiðar Þorvaldsson en misstu hann svo aftur fyrir tímabilið. Getur það sama gerst með Hannes? "Það er búið að loka öllum félagaskiptagluggum núna og hann getur því ekki farið neitt fyrr en í júlí. Þess vegna höfum við beðið til 1. apríl með þetta mál en það eru 2-3 vikur síðan gengið var frá málinu. Við vildum því bíða rólegir." FH er líkt og síðustu ár með afar sterkt lið í höndunum. Stendur til að bæta við hópinn. "Við erum komnir með mjög þéttan hóp. Það er bónus að fá Hannes heim. Við erum ekki hættir á markaðnum en við erum ekki að leita lengur."
Pepsi Max-deild karla Skroll-Íþróttir Mest lesið Súkkulaðimjólkin sögð betri fyrir íþróttafólk en íþrótta- eða orkudrykkir Sport Frétti af Schumacher og fékk sjokk: „Átti að fara njóta lífsins“ Formúla 1 Norðmenn rífast um hvort kynferðisafbrotamaður eigi að spila með landsliðinu Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Fortuna 0-1| Dönsku meistararnir þurftu að hafa fyrir hlutunum Fótbolti Ísland - Serbía | Stelpurnar okkar stefna á EM Körfubolti Fyrri úrslitaleikurinn af tveimur Fótbolti Yfirmaður dómara segir það rétt að dæma markið af Liverpool Enski boltinn Glódís hetjan í ótrúlegum sigri á Arsenal Fótbolti Svona var blaðamannafundur Íslands í Bakú Fótbolti „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arna Sif aftur heim „Getur vel verið að ég sé að tala með rassgatinu“ Eiður Aron fylgir Davíð Smára til Njarðvíkur Hefur þjálfaraferilinn á Hornafirði Íslenskan mesta eftirsjáin: „Tala hana mest fullur niðri í bæ“ Guðmundur Guðjónsson tekur við ÍR á ný Bikarmeistararnir komnir með nýjan þjálfara Óli Jó um lágpunkt ferilsins: „Fannst þeir koma illa fram við mig“ Brynjar Björn í Breiðholtið „Það er alltaf pressa að þjálfa Breiðablik“ Varar sig á því að Nik stelist í leikmenn: „Sagði hann það?“ Markadrottning Bestu deildarinnar framlengir „Hlutir sem gerast þarna sem sátu aðeins í mér“ Davíð Smári hikar ekki: „Við ætlum að vinna þessa deild“ Magnús verður áfram í Mosfellsbæ Pálmi í ótímabundið leyfi „Ég og Nik erum ágætis vinir“ Davíð Smári tekur við Njarðvík Jeffs tekur við Breiðabliki Leiðir Breiðabliks og Damir skilja „Við viljum koma Haukum á fótboltakortið“ Fram líka fljótt að finna nýja ást „Í ástarsorg er gott að finna sér nýja ást sem fyrst“ Fanndís hefur ekkert heyrt frá Val og íhugar að hætta „Það verður hundleiðinlegt að spila við Val“ Hermann tekinn við Val Fóru nýja leið í ár og auglýstu eftir þjálfara: Tommy Nielsen ráðinn Pablo og Óskar Örn inn í þjálfarateymi Hauka FH-ingar kveðja Kjartan Henry Tölur úr Bestu: Bjartur Bjarmi fór í flestar tæklingar af öllum Sjá meira