Lýst eftir lukkupeningi Jóakims frænda 23. mars 2011 13:36
Iðnaðarsafn Danmerkur í Horsens leitar nú með logandi ljósi að eintaki af lukkupeningi Jóakims frænda frá Andabæ. Hefur safnið raunar lýst eftir slíkum peningi vegna sýningar sem er framundan á safninu. Lukkupeningur Jóakims frænda er afar sjaldgæfur þar sem megninu af upplagi hans var eytt vegna tilmæla frá danska seðlabankanum. Fjallað er um málið í Berlingske Tidende. Þar segir að árið 1994 hafi lukkupeningurinn verið sleginn og átti að dreifa honum með blaðinu Lommeanden nr. 10 það árið. Hinsvegar þótti peningurinn svo líkur dönsku 10 króna myntinni að seðlabankinn fékk peninginn innkallaðan og eyðilagði upplag hans. Þó ekki alveg því nokkrir af þessum lukkupeningum sluppu í umferð með fyrrgreindu blaði. Sýningin sem Iðnaðarsafnið er að setja á fót á að hefjast í næsta mánuði en hún fjallar um teiknimyndaseríur og telja forráðamenn safnsins að vart sé hægt að opna hana nema lukkupeningurinn sé til staðar. Þess má svo geta að skömmu eftir að frétt um málið birtist á vefsíðu Berlingske Tidende höfðu hjón í Lyngby samband við safnið og sögðust eiga eintak af lukkupeningnum í fórum sínum. Þau ætla að senda hann til Horsens. Hjónin höfðu eignast peninginn þegar eiginkonan keypti eintak af Lommeanden nr. 10 árið 1994. Lengi hafði staðið til að henda þessum pening í ruslið en nú bjargar hann sýningunni í Horsens.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira