Dönsk ríkisskuldabréf seljast eins og heitar lummur 28. mars 2011 10:58
Samkvæmt nýjum upplýsingum frá Nationalbanken, danska seðlabankanum, keyptu erlendir fjárfestar dönsk ríkisskuldabréf fyrir 21 milljarð danskra kr. í febrúar s.l. Þar með eiga útlendingar nú um 321 milljarð danskra kr., eða tæplega 6.500 milljarða kr., í dönskum ríkisskuldabréfum. Í frétt um málið í börsen.dk segir að þar með sé heildareign útlendinga í dönskum ríkisskuldabréfum orðin meir en hún var í ágúst í fyrra þegar hún sló met. Það eru einkum styttri flokkar danskra ríkisskuldabréfa sem fjárfestar sækja í, að er bréf til eins og tveggja ára. Jafnmikil eftirspurn er eftir þeim bréfum sem dönsk stjórnvöld hafa gefið út í dönskum krónum og dollurum. Samkvæmt upplýsingum frá Nationalbanken er um tveir þriðju hlutar seldra ríkisskuldabréfa í dönskum kr. en einn þriðji í dollurum en nýr skuldabréfaflokkur í dollurum til tveggja ára var gefinn út eftir áramótin. Ásókn í dönsk ríkisskuldabréf skýrist einkum af ástandinu í ríkjum suðurhluta Evrópu þar sem fjárfestar hafa reynt að losa sig úr stöðum sínum eins hratt og þeir geta. Þetta á við lönd eins og Grikkland, Portúgal og Spán.
Mest lesið Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira