Endurskipulagningu lokið hjá French Connection 15. mars 2010 09:45
Endurskipulagningu tískuverslunarkeðjunnar French Connection er ný lokið en keðjan hefur selt vörumerkið Nicole Farhi og lokað flest öllum verslunum sínum í Bandaríkjunum.Þrotabú Baugs heldur á tæplega 18% hlut í French Connection í gegnum félagið Unity Investments sem Baugur átti í félagi við Kevin Stanford.Í frétt um málið á Reuters segir að samkvæmt ársuppgjöri síðasta árs, sem lauk 31. janúar s.l. nam tapið af rekstri French Connection 24,9 milljónum punda eftir skatta. Til samanburðar nam tapið árið áður 16,4 milljónum punda.Ljósi punkturinn í ársuppgjörinu er að sá rekstur sem French Connection heldur áfram eftir endurskipulagninguna skilaði hagnaði upp á 1,3 milljónir punda í fyrra. Fyrir utan verslanir í Bandaríkjunum hefur keðjan verið að losa sig við verslanir í Japan og Evrópu á síðasta ári.Hlutir í French Connection hafa fallið um 23% í verði á undanförnum sex mánuðum. Verðmatið á keðjunni nemur 40 milljónum punda. Verðmæti hluta þrotabús Baugs er þannig 7,2 milljónir punda eða tæplega 1,4 milljarðar kr.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira