Óskar Bjarni: Grátlegt og ekki sanngjarnt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. apríl 2010 22:21 Óskar Bjarni á hliðarlínunni í kvöld. Mynd/Vilhelm
Óskar Bjarni Óskarsson, þjálfari Vals, þurfti að horfa upp á sína menn missa frá sér sigurinn í fyrsta úrslitaleiknum á móti Haukum á Ásvöllum í kvöld. Valsliðið spilaði frábærlega fyrstu 50 mínúturnar og var þremur mörkum yfir þegar 7 mínútur voru eftir en tapaði síðustu sjö mínútunum 1-5 og þar með leiknum 22-23. „Við vorum miklu sterkari en þeir en svo gáfum við aðeins eftir í lokin. Birkir fór að verja frá okkur og þeir fóru að skora einföld mörk af línu," sagði Óskar Bjarni Óskarsson, svekktur þjálfari Valsliðins í leikslok. „Mér fannst við aðeins vera búnir á því í endann en það vantaði aðeins orku og kraft til þess að klára þetta. Við gerðum of mikið af aulamistökum varnarllega í seinni hálfleik og þeir voru að skora of einföld mörk því það var ekkert leikkerfi hjá þeim sem við vorum í vandræðum með," sagði Óskar „Við þurftum að gera betur sóknarlega því þetta var erfitt þar í lokin. Við köstuðum þessu frá okkur sem er leiðinlegt, það hefði verið sanngjarnt að við hefðum unnið þennan leik í það minnsta náð þessu í framlengingu," sagði Óskar Bjarni og það er ljóst að hans menn eru til alls líklegir með spilamennsku sinni fyrstu 50 mínútur leiksins. „Fólk er búið að vera gefa það í skyn að við eigum ekki möguleika í þetta einvígi en við áttum að vinna þennan leik og allavega ná í framlengingu. Þetta er bara grátlegt og engan veginn sanngjarnt," sagði Óskar Bjarni.
Olís-deild karla Mest lesið Ferill Jake Paul í hættu Sport „Eins og að mennirnir sem stjórna Tindastóli séu að missa hausinn“ Körfubolti Eldræða Arnars: „Hlaupa og senda fingurinn upp í stúku“ Körfubolti Heyrðu samskipti dómara í stærsta atviki tímabilsins Enski boltinn McIlroy þurfti að hætta eftir þrjár holur Golf „Einhver barnaskapur held ég“ Körfubolti Fyrsti samkynhneigði leikmaður NBA deildarinnar er látinn Körfubolti HSÍ verður að fá pening frá ríkinu Handbolti Látinn aðeins 29 ára Körfubolti Skrípamark kom í veg fyrir að Ronaldo yrði meistari í gær Fótbolti Fleiri fréttir Gísli Þorgeir útskýrir fjarveru sína: „Ber ekkert nema virðingu fyrir landsliðinu“ HSÍ verður að fá pening frá ríkinu „Hlakkaði til að koma hingað eftir síðasta leik“ „Gríðarlega stoltur af leikmönnum mínum“ „Ofboðslega stolt af því að standa hér sem sigurvegari“ „Fann það þegar ég vaknaði í morgun að við værum on“ „Tímabilið hefur verið rússibani“ „Slæm byrjun í seinni hálfleik varð okkur að falli“ Uppgjörið: ÍBV - Valur 26-30 | Valur tryggði sér titilinn í annarri tilraun Katrín Tinna til Danmerkur „Við þurfum að gera betur á öllum vígstöðvum“ Birgir Már til Amicitia Zürich Alfreð fékk heiðursorðu Ómar Ingi fór hamförum og Íslendingaliðið einu skrefi frá titli ÍBV fær háa sekt vegna ósæmilegrar hegðunar stuðningsmanns „Eitt allra eftirminnilegasta íþróttalið síðasta áratuginn“ Vilja banna landsliðsþjálfurum að þjálfa félagslið Allt öðruvísi úrslitakeppni og stærri Olís-deild kvenna Uppgjörið: Valur - ÍBV 27-35 | Ólöf Maren skellti í lás og ÍBV strengdi líflínu Landsliðstríóið í úrslit um þýska titilinn Litli bróðir ætlar líka að verða meistari Alvöru garðpartý Valsmanna á pallinum hjá Magnúsi Lærisveinar Arnórs náðu mikilvægu stigi Fautabrögð slógu Einar Braga ekki út af laginu Gætu grætt á því að tapa Myndaveisla: Tilfinningarík stund þegar bikarinn fór á loft á Hlíðarenda Gidsel getur mölbrotið markamet Hansen „Við áttum þetta skilið“ Íslandsmeistari gegn uppeldisfélaginu í síðasta leiknum á ferlinum Magnaður Haukur með tíu marka leik í mikilvægum sigri Sjá meira