Fjöldi nauðungaruppboða tvöfaldast í Danmörku 9. apríl 2010 08:34 Af einstökum landshlutum í Danmörku sé staðan verst á Sjálandi en þar hefur fjöldi nauðungaruppboða þrefaldast.
Þessa dagana eru haldin meir en 500 nauðungaruppboða á fasteignum í Danmörku í hverjum mánuði og hefur fjöldi þeirra tvöfaldast á einu ári.Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að alls voru 514 nauðungaruppboð haldin í mars og er það aukning um 99% frá marsmánuði í fyrra. Að sögn Hagstofu Danmerkur hefur fjöldi nauðungaruppboða í landinu ekki verið meiri síðan árið 1995.Höfuðástæður fyrir nauðungaruppboðunum eru lækkandi fasteignaverð samfara auknu atvinnuleysi og að fram til ársins 2008 hækkuðu vextir stöðugt á breytilegum lánum.Sten Bocian aðalhagfræðingur Danske Bank segir að fyrrgreind blanda hafi leitt til þess að sífellt fleiri íbúðaeigendur hafi lent í vandræðum með skuldbindingar sínar. Samtímis hafi markaðsverð eigna þeirra lækkað svo mikið að viðkomandi geti ekki losað sig úr skuldunum með því að selja eignirnar.Fram kemur í máli Bocian að Danske Bank telur að þessi staða muni fara versnandi og að nauðungaruppboðum muni fara fjölgandi á næstu ársfjórðungum.Í frétt Jyllands Posten segir að af einstökum landshlutum í Danmörku sé staðan verst á Sjálandi en þar hefur fjöldi nauðungaruppboða þrefaldast á einu ári.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira