Óvissa um framtíð Bernankes Jón Hákon Halldórsson skrifar 23. janúar 2010 16:09 Bernanke er nokkuð umdeildur maður í Bandaríkjunum vegna samdráttarins. Mynd/ Getty.
Óvissa ríkir um hvort þingmenn Öldungadeildar Bandaríkjaþings staðfesti val á Ben Bernanke sem seðlabankastjóra Bandaríkjanna. Harry Reid, leiðtogi demókrata í öldungadeild Bandaríkjaþings, hefur lýst yfir stuðningi við Bernanke. Tveir demókratar í öldungadeildinni sögðu hins vegar í gær að þeir myndu leggjast gegn útnefningu Bernankes í embættið. Reuters fréttastofan segir að áhyggjur af atvinnumarkaðnum í Bandaríkjunum og reiði vegna hlutabréfamarkaðarins á Wall Street hafi leitt til þess að öldungadeildarþingmenn sem sjá fram á þingkosningar í nóvember beini sjónum sínum að seðlabankanum. Ben Bernanke hefur gegnt embætti seðlabankastjóra frá árinu 2006 en skipunartímabili hans lýkur þann 31. janúar næstkomandi.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira