Bíll til sölu: Staðalbúnaður er radar, reykvörn og vélbyssur 2. júní 2010 07:28
Sögufrægur bíll fer á uppboð í þessari viku. Meðal staðalbúnaðar í honum eru radar, reykvörn, nagladreifari og tvær vélbyssur. Bíllinn sem hér um ræðir er af gerðinni Aston Martin Silver Birch DB5. Fyrri eigandi hans var ofurhetjan James Bond en bíllinn var fararskjóti Bond í myndunum Goldinger og Thunderball. Núverandi eigandi er Jerry Lee sem rekur útvarpsstöðvar í Philadelpiu í Bandaríkjunum. Lee keypti bílinn eftir að tökum á myndinni Thunderball lauk fyrir rúmlega 40 árum síðan og ók honum beint inn í bílskúr sinn. Þar hefur hann staðið síðan og hefur Lee aldrei keyrt hann frá þessum tíma. Það fylgir því sögunni að bíllinn er lítið keyrður. Í frétt um málið í Wall Street Journal segir að Lee hafi borgað 12.000 dollara á sínum tíma fyrir þennan Aston Martin en búist er við að hann verði seldur á nokkrar milljónir dollara eða nokkur hundruð milljóna króna í dag. Austin Martin af þessari gerð var síðast seldur árið 2006 og fengust þá rúmlega tvær milljónir dollara fyrir hann. Sá hafði hinsvegar ekki komið fram í Bond mynd og var ekki með þeim staðalbúnaði sem Q setti í þennan bíl.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira