Aron Kristjánsson: Hlynur er að verja alltof mikið frá okkur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. maí 2010 19:00 Aron Krisjánsson, þjálfari Hauka.
Aron Krisjánsson, þjálfari Hauka, þarf að reyna að fá sína menn til þess að mæta af meiri krafti í leikina því annan leikinn í röð misstu þeir Valsmenn langt fram úr sér í úrslitaeinvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Haukarliðið bjargaði sér í fyrsta leiknum en varð að sætta sig við tap í dag. „Við vorum því miður of seinir að taka við okkur í dag og það vantaði aðeins upp á hungrið. Það vantaði tíu til fimmtán prósent upp á baráttuna í byrjun leiks og við vorum of slakir í varnarleiknum okkarm" sagði Aron. „Þegar við lendum í mótlæti í seinni hálfleik, fáum mikið af brottvísunum og lendum sex mörkum undir þá er eins og liðið vakni. Við náum að éta okkur aftur inn í leikinn en því miður náðum við ekki að tryggja okkur framlengingu. Það munaði litlu hjá okkur en þetta var ekki nóg," sagði Aron. „Við vorum 1-0 yfir og kannski hafa mínir menn fundið eitthvað öryggi í því. Staðan er 1-1 núna og við þurfum bara að mæta tvíefldir til leiks á þriðjudaginn," segir Aron. „Það er hellingur að hlutum sem við getum lagað í okkar leik en mér fannst við vera að gera marga hluti vel sóknarlega og þá þessa hluti sem við vorum búnir að vera tala um að bæta. Við þurfum að taka það með okkur áfram en hinsvegar þurfum við að skjóta miklu betur á Hlyn í markinu. Hann er að verja alltof mikið frá okkur," sagði Aron. „Mér fannst við finna ýmsar lausnir á þeirra varnarleik sem var að virka hjá okkur en við vorum að skjóta mjög illa á markið," sagði Aron „Mér fannst við vera sjálfum okkur verstir í þessum leik og því miður fór þetta svona. valsararnir voru með frumkvæðið allan leikinn og lönduðu verðskulduðum sigri," sagði Aron að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Uppgjörið: Györ ETO - Víkingur 2-2 | Tvö mörk Daníels komu Víkingi áfram í næstu umferð Fótbolti Spánverjar í úrslitaleikinn eftir sannfærandi sigur á Frökkum Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Willum hrifinn af norska módelinu Sport Hafþór Júlíus gefst ekki upp þrátt fyrir vonbrigðin Sport „Verið að þreyta okkur þangað til við gefumst upp“ Körfubolti Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Sakar lækni landsliðsins um loddaraskap Fótbolti „Mikilvægasti leikurinn minn og ég er ekki hræddur“ Fótbolti Bróðir Yamals slær í gegn á HM Fótbolti Fleiri fréttir Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Sjá meira