Aron sendi Haukana heim með heimaverkefni Henry Birgir Gunnarsson skrifar 4. maí 2010 14:30
Íslandsmeistarar Hauka hafa ekki náð að sína sitt rétta andlit í fyrstu tveimur leikjunum gegn Val í úrslitum Íslandsmóts karla í handknattleik. Haukarnir hafa verið hálfstemningslausir og ekki kviknað á liðinu fyrr en undir lok leikjanna. Það skilaði þeim þó einum sigri og staðan í einvíginu er 1-1. Haukarnir gætu þó hæglega verið 2-0 undir. Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, hefur eðlilega áhyggjur af þessu andleysi hjá sínum mönnum og hann brá því á það ráð að senda leikmenn liðsins heim með heimaverkefni eftir æfingu í gær. „Hvað geturðu gert fyrir liðið?" var fyrirsögn heimaverkefnisins en allir leikmenn liðsins áttu að skrifa niður eitthvað þrennt sem þeir ætluðu að leggja til liðsins. „Það hafa verið einhver þyngsli í okkur og ég kann í rauninni enga skýringu á því. Valsmennirnir eru afar hungraðir og við verðum að átta okkur á því og til í að mæta því," segir Freyr Brynjarsson, hornamaður Hauka, en hann var sjálfur mikið í því í fyrra að búa til stemningsmyndbönd. „Ég hef ekkert gert af því í úrslitakeppninni núna. Ég hef bara ekki dottið í gírinn með það. Ég hef samt fulla trú á því að við finnum gírinn í kvöld og mætum rétt stemmdir," segir Freyr.Þriðji leikur liðanna fer fram að Ásvöllum í kvöld og hefst klukkan 19.30.
Olís-deild karla Mest lesið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Enski boltinn Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Fótbolti Vildi tapa legg: „Mesti hávaði sem ég hef heyrt“ Sport Salah færði Egyptum draumabyrjun Fótbolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Steraleikarnir segi ungu fólki að það sé aldrei nógu fullkomið Sport Hættur aðeins þrítugur Golf Dagskráin í dag: Kæst yfir NFL, pílu og enska boltanum Sport Afkáralegt fagn hjá hetju Sambíu Fótbolti Aron Einar lagði upp dýrmætt sigurmark Fótbolti Fleiri fréttir Haukur getur náð hundrað plús hundrað fyrir EM-fríið Rúnar sótti sinn fyrsta sigur sem þjálfari Wetzlar Haukur með sjö mörk og Magdeburg rétt marði botnliðið Rúmlega áttræður Moustafa endurkjörinn forseti IHF með yfirburðum Slæm fjárhagsstaða HSÍ kemur ekki niður á EM Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Sjá meira