Langtímaatvinnuleysi eykst hratt í Danmörku 19. september 2010 09:13
Langtímaatvinnuleysi eykst hratt í Danmörku og ef heldur sem horfir glíma um 60.000 Danir við langtímaatvinnuleysi um næstu áramót. Fyrir tveimur árum var fjöldi þeirra 15.000 talsins.Í frétt um málið í Jyllands Posten kemur fram að fjöldi langtímaatvinnulausra jókst um 3.000 manns mánuðina maí og júní og voru þá 51.000 slíkir í landinu. Þetta atvinnuleysi hefur nú aukist 16 mánuði í röð. Með langtímaatvinnuleysi er átt við fólk sem verið hefur á atvinnuleysisskrá í allt að eitt ár. Tölurnar eru byggðar á úttekt heildarsamtaka verkalýðsfélaganna í Danmörku en Lars Andersen forstjóri efnahagsráðs þeirra segir að dönsk stjórnvöld hafi verið alltof sein í að hefja baráttu sína gegn þessu vandamáli og stöðva þróunina. Andersen bendir á að því lengur sem fólk er á atvinnuleysisskrá því erfiðara verður fyrir það að útvega sér vinnu að nýju. Hann leggur m.a. til að krepputími sé notaður til að mennta fólk, þannig að þeir sem vilja mennta sig frekar í sinni starfsgrein geti fengið sérstak orlof til þess. Á móti fá atvinnulausir á meðan að ganga í störfin sem losna með þessum hætti.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira