Evran áfram undir grískum áhrifum 23. mars 2010 11:51
Evran heldur áfram að gefa eftir og er það Grikklandskrísan eftir sem áður sem ræður mestu þar um. Evran kostar þegar þetta er ritað (11:00) 1.351 dal. Evran hefur nú lækkað um 1,9% á síðustu fjórum viðskiptadögum. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að Grikkland hafi verið allsráðandi í hreyfingum á evru/dollar gengiskrossinum undanfarna mánuði og útlit er fyrir að evran muni enn eiga undir högg að sækja á meðan málefni Grikkja eru óleyst. Á fimmtudaginn næsta koma leiðtogar Evrópusambandsins saman á fundi þar sem málefni Grikklands verða rædd. Búist er við að Evrópuríkin undir forystu Angelu Merkel kanslara Þýskalands hafni því að veita Grikklandi beina aðstoð. Verði það niðurstaða fundarins er fastlega búist við því að Grikkland leiti á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en gríski forsætisráðherrann hefur sjálfur sagt að það sé næsti kostur. Svo virðist vera að markaðsaðilum hugnist ekki að Grikkland leiti til AGS en evran hefur ítrekað veikst í kjölfar þess sem AGS kemur til tals. Ástæðan fyrir þessu er að það er afar neikvætt fyrir evruna ef í ljós kemur að ESB getur ekki fundið lausn á þessum vanda án utanaðkomandi aðstoðar. Sú niðurstaða veikir ESB og skilur eftir sig óvissu um hvernig á að taka á vandamálum sem þessum í framtíðinni. Athyglisvert verður að fylgjast með þegar leiðtogar ESB koma saman seinna í vikunni og setjast á rökstólanna varðandi framtíð Grikklands en búast má við að evran haldi áfram að sveiflast í grískum takti þar til þá.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira