All Saints stígur með stíl úr íslensku rústunum 29. apríl 2010 08:58
Þannig hljómar fyrirsögnin á Timesonline um ársuppgjör tískuverslanakeðjunnar All Saints fyrir síðasta reikningsár sem lauk í lok janúar s.l. Salan á vörum All Saints hefur rokið upp sem og hagnaður keðjunnar.Alls Saints, sem stjórnað er af Kevin Stanford, sogaðist niður í hringiðu íslenska bankahrunsins haustið 2008 og litlu munaði að keðjan færi í gjaldþrotameðferð. Á síðasta ári jókst salan hinsvegar um 46% og í 113 milljónir punda. Hagnaður fyrir skatta nam tæpum 11 milljónum punda eða um 2 milljörðum kr.Baugur átti 35% hlut í All Saints þegar bankahrunið skall á Íslandi haustið 2008. Í framhaldinu fékk keðjan ekki lengur eðlilega fyrirgreiðslu hjá birgjum sínum og varð að staðgreiða allar vörur. Staðan versnaði svo vegna lagadeilu milli Stanford og Kaupþings um hvort Stanford væri heimilt að afla nýs fjár með hlutafjáraukningu þar sem Kaupþing átti veð í hlutum Stanford vegna persónulegs láns til hans.All Saints tókst að losa sig úr þessum íslensku flækjum með nýju láni frá Lloyds Banking Group og nú blómstrar reksturinn sem sjaldan fyrr.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira