Heimsmarkaðsverð á gulli í 1.300 dollara á únsuna 27. september 2010 14:56
Heimsmarkaðsverð á gulli sló enn eitt metið í dag þegar það fór í 1.300 dollara á únsuna. Verð á silfri fylgir í kjölfarið og hefur ekki verið hærra í 30 ár en það hefur hækkað um 30% á árinu. Þetta kemur fram í frétt á Reuters. Þar segir að fjárfestar hafi hellt fjármagni inn á gullmarkaðinn í dag en ástæðan er sem fyrr áhyggjur af því að efnahagur heimsins sé ekki í eins miklum bata og spáð hefur verið. Einnig spila inn í áhyggjur af því að verðbólga muni vaxa það sem af er árinu. Sérfræðingar reikna með að gullverðið haldi áfram að hækka og fari í 1.315 til 1.325 dollara á únsuna í náinni framtíð. Þa spá sumir því að gullverðið fari yfir 1.400 dollara á næsta ári. Verð á silfri fór í 21,61 dollar á únsuna í dag og hefur ekki verið hærra í 30 ár. Sumir fjárfestar segja að það sé raunar betra að fjárfest í þeim málmi en gulli þar sem helmingur af silfurframleiðslu heimsins er notaður í iðnaði en aðeins 10% af gullframleiðslunni.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira