FIH banka tókst að snúa miklu tapi í hagnað í ár 4. maí 2010 17:35 Þrátt fyrir jákvætt uppgjör hefur FIH þurft að taka á sig miklar afskriftir að undanförnu. Í ársfjórðungsuppgjörinu eru afskriftirnar bókfærðar upp á tæplega 161 milljón danskra kr.
FIH bankinn danski skilaði uppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung í dag. Samkvæmt því hefur hann snúið miklu tapi á sama ársfjórðung í fyrra í hagnað upp á 200 milljónir danskra kr. eða hátt í fimm miljarða kr. Tapið á sama tímabili í fyrra nam tæpum hálfum milljarði danskra kr. Sjálfur segir bankinn í tilkynningu um uppgjörið að niðurstaðan í ár sé "ásættanleg". Samhliða hefur FIH tilkynnt að bankinn hefur aukið væntingar sínar um hagnað yfir þetta ár um 100 milljónir danskra kr. þ.e. úr 400 milljónum og upp í hálfan milljarð danskra kr. Eins og margoft hefur komið fram er FIH í íslenskri eigu og raunar á forræði slitastjórnar Kaupþings. Hinsvegar á Seðlabanki Íslands allsherjarveð í bankanum upp á 500 milljónir evra í kjölfar neyðarláns til Kaupþings korteri fyrir hrun þess banka haustið 2008. Í frétt á börsen.dk er raunar vitnað sérstaklega í uppgjörið þar sem segir að eignarhaldið á FIH bankanum sé enn ófrágengið eða „fortsat er uafklarede" eins og það er orðað. Hinsvegar er tekið fram að hrun Kaupþings hafi aldrei haft í för með sér tap á rekstri bankans og að hann starfi sem danskur banki undir dönskum lögum og reglugerðum. Þrátt fyrir jákvætt uppgjör hefur FIH þurft að taka á sig miklar afskriftir að undanförnu. Í ársfjórðungsuppgjörinu eru afskriftirnar bókfærðar upp á tæplega 161 milljón danskra kr. Vegna stuðnings frá dönskum stjórnvöldum gegnum bankpakke I er lausafjárstaða FIH mjög góð í augnablikinu en lausafé bankans nemur 23,9 milljörðum danskra kr. eða um 540 milljörðum kr.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Neytendur Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira