Actavis býður Ratiopharm upp á kauphallarskráningu 9. mars 2010 08:53
Actavis hefur boðið stjórn þýska samheitalyfjafyrirtækisins Ratiopharm kauphallarskráningu á sameinuðu fyrirtæki fari svo að Ratiopharm samþykki Actacvis sem kaupenda. Þetta kemur fram í frétt á Reuters þar sem segir að tilboðið sé aðaltromp Actavis í baráttunni við að kaupa Ratiopharm.Reuter vitnar í tvær heimildir í þessari frétt en í gærdag kynnti Actavis sitt kauptilboð fyrir stjórn Ratiopharm. Eins og fram hefur komið í fréttum keppir Actavis við bandaríska lyfjarisann Pfizer og Teva sem er stærsta samheitalyfjafyrirtæki heims um kaupin á Ratiopharm.Deutsche Bank, aðallánadrottinn Actavis, styður við bakið á Actavis í baráttunni um Ratiopharm. Á fyrrgreindri kynningu kom fram að bankinn myndi skipta töluverðum hluta af rúmlega 4 milljarða evra skuld Actavis yfir í hlutafé og þannig lækka skuldastöðu fyrirtækisins umtalsvert.Ennfremur kom fram að ef af samruna Actavis og Ratiopharm yrði myndi hið nýja félag verða sett á markað og kauphallarskráð eftir 5 til 8 ár. Í Reuters segir að hvorki Ratiopharm né Deutsche Bank hafi viljað tjá sig um efni kynningarfundarins.
Mest lesið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Viðskipti innlent Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Viðskipti innlent Súperdósin snýr aftur Neytendur Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Viðskipti innlent Fleiri fréttir GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira